Þetta kom fram í viðtali Kastljóssins við Sigurð Inga Jóhannsson samgönguráðherra í gærkvöldi. Þar gekk Sigríður Hagalín mjög eftir svörum; hvort ekki væri augljóst að höfuðborgarbúar og nálæg byggðalög bæru hita og þunga af vegaframkvæmdum með hinum fyrirhuguðu vegatollum sem setja á upp víða við borgarmörk. Ráðherra vildi ekki meina að svo væri. Í lok samtalsins var Sigurður Ingi spurður um nýjan Herjólf.

Ráðherra sagði að upphaflega hafi sú ferja verið hönnuð sem twin-ferja og hefur afhending dregist í um ár. Hann sagði að þróun í nýjum batteríum og rafbúnaði hafi á sama tíma verið hraður og verð farið lækkandi.
„2017 fékk ráðuneytið tilboð um að það væri hægt að útfæra þetta þannig að ferjan yrði eingöngu rafknúin. Ávinningurinn er margþættur, skilar sér í eldsneytissparnaði, að sögn ráðherra, sem borgar upp aukinn kostnað á tíu árum,“ sagði Sigurður Ingi í samtali við Sigríði Hagalín:
Þetta er hærri upphæð en þið ætlið að setja í borgarlínu næstu tvö árin?
„Þetta er svipuð fjárhæð.“
Hefði ekki verið nær að gera gangskör í að fara í frekari framkvæmdir í almannasamgöngum á höfuðborgarsvæðinu?
„Þá hefðum við þurft að fara í dýrari framkvæmdir á ferjunni seinna meir, taka hana úr rekstri, og það hefði kostað meiri fjármuni að gera þetta síðar. Fyrir utan rekstrartjónið að stoppa og leigja annað skip. Miklu dýrari aðgerð og seinna sem við hefðum fengið ávinninginn af þessari breytingu. Þess vegna var skynsamlegt að gera þetta strax.“