Fyrrverandi borgarstjóri San Salvador kjörinn forseti Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2019 09:01 Nayib Bukele hefur gegnt embætti borgarstjóra í höfuðborginni San Salvador. Getty
Nayib Bukele er nýr forseti El Salvador, en úrslit voru kunngjörð í gærkvöldi. Bukele er fyrrverandi borgarstjóri höfuðborgarinnar San Salvador og var hans helsta kosningaloforð að eyða spillingu í landinu. Búið er að telja flest atkvæði og fékk Bukele 53 prósent þeirra, en íhaldsmaðurinn Carlos Calleja var annar með 32 prósent. Bukele þurfti meira en 50 prósent atkvæða til að ná kjöri, ella hefði verið kosið á milli tveggja efstu. Eins og áður sagði lofar Bukele að berjast gegn spillingu auk þess sem hann hefur sagt glæpagengjum stríð á hendur en glæpir eru stórt vandamál í þessu litla Mið-Ameríkuríki og morðtíðnin á meðal þess hæsta sem fyrirfinnst í heiminum. Síðustu tvo áratugina hafa tveir flokkar, hinn íhaldssami Arena og vinstriflokkurinn FMLN, skipst á að fara með völdin í landinu en Bukele er hinsvegar frambjóðandi Gana, eða Þjóðfylkingarinnar.
El Salvador Tengdar fréttir Salvadorar ganga til forsetakosninga í dag Salvadorar ganga í dag til forsetakosninga,líkur eru á því að í fyrsta sinn síðan 1989 verði kjörinn forseti utan tveggja stærstu flokka landsins. 3. febrúar 2019 16:50 Mest lesið Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Máttu ekki banna fréttamenn AP Erlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Taldi sig vanhæfan í að afgreiða umsókn Hvals hf. Innlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Erlent Stoltir Íslendingar af þætti sínum í stærsta fraktflugfélagi Evrópu Innlent Fyrsta langreyðurin á vertíðinni háði 35 mínútna dauðastríð Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Sjá meira
Salvadorar ganga til forsetakosninga í dag Salvadorar ganga í dag til forsetakosninga,líkur eru á því að í fyrsta sinn síðan 1989 verði kjörinn forseti utan tveggja stærstu flokka landsins. 3. febrúar 2019 16:50