Verða verðlaun fyrir kvikmyndatöku, kvikmyndaklippingu , förðun og hárgreiðslu og stuttmynd afhent á meðan auglýsingahléi stendur en þetta er gert til að stytta útsendinguna með von um að auka þannig áhorf á Óskarinn sem hefur hrunið undanfarin ár.
Kvikmyndakademían vill meina að þetta sé ekki svo mikill skellur fyrir kvikmyndagerðarmennina því þakkarræðurnar verða sýndar síðar meir í beinni útsendingu. Er vonast til að það þetta stytti útsendinguna um 40 mínútur, eða niður í þrjár klukkustundir.
Hópurinn sem hefur mótmælt þessari ákvörðun telur fimmtíu manns og samanstendur af nokkrum af stærstu stjörnum heimsins í dag. Þar á meðal George Clooney, Brad Pitt, Robert de Niro, Christopher Nolan, Martin Scorsese, Elizabeth Banks, Peter Dinklage, Spike Lee, Damian Chazelle, Seth Rogen, Ang Lee, Cary Joi Fukunaga og Spike Jonze.
Telja stjörnurnar þessa ákvörðun kvikmyndaakademíunnar vera móðgun við stéttina.

Hann hefur brugðist harkalega við þessar ákvörðun á Twitter.
„Í kvikmyndagerðarsögunni hafa meistaraverk lifað án hljóðs, lita, sögu, leikara og tónlistar. Engin mynd hefur orðið til án kvikmyndatöku og án kvikmyndaklippingar,“ skrifaði mexíkóski leikstjórinn sem hefur áður hlotið Óskarsverðlaun fyrir myndina Gravity.
In the history of CINEMA, masterpieces have existed without sound, without color, without a story, without actors and without music. No one single film has ever existed without CINEMAtography and without editing.
— Alfonso Cuaron (@alfonsocuaron) February 12, 2019
Þetta er þó nokkur viðsnúningur frá því sem áður þekktist, þegar allir höfðu áhuga og skoðun á því hver vann til verðlauna. Það skipti miklu máli fyrir myndir áður fyrr að vera tilnefndar upp á áhorf og orðin sjaldgæf sjón að vinsælustu myndir hvers árs standi uppi sem sigurvegarar á Óskarsverðlaunahátíðinni, líkt og með Forrest Gump og Titanic.
Reynt var að bregðast við þessu árið 2010 með því að fjölga kvikmyndum í flokki bestu mynda úr fimm í tíu og hleypa þannig stórsmellinum Avatar inn í þann flokk.
Frá þeim tíma hefur það verið í höndum akademíunnar hversu margar myndir eru tilnefndar hverju sinni, stundum níu og stundum átta, líkt og í ár.

Það mátti þó merkja ákveðna viðhorfsbreytingu í vali á hvaða myndir voru tilnefndar sem besta myndin í ár. Þar má sjá ofurhetjumyndina Black Panther sem fór sigurför um heiminn í fyrra. Myndin þótti vel heppnuð en þó ekki beint afgerandi mun betri heldur en aðrar afar svipaðar Marvel-myndir sem hafa komið út í jöfnum straumi undanfarin ár.
Bohemian Rhapsody, sem segir frá hljómsveitinni Queen og forsprakka hennar Freddie Mercury, hlaut ekki sérstaka dóma gagnrýnenda en féll í kramið hjá áhorfendum. Myndin er borin uppi af aðalleikara hennar Rami Malek og gekk afar vel í miðasölu kvikmyndahúsa. Hún hlaut tilnefningu sem besta mynd sem þykir einnig vera til marks um að akademían vilji færa sig nær áhorfendum og gera sig þannig gjaldgenga aftur hjá almenningi.

Hart sagði sig frá starfinu og var ákveðið að hafa engan kynni.
Síðan barst það út að þeir leikarar sem fengu Óskarinn í fyrra yrðu ekki fengnir til að afhenda verðlaun í ár, líkt og hefð var fyrir. Þurfti að snúa frá þeirri ákvörðun eftir að hún hafði verið gagnrýnd harkalega.
Akademían hafði einnig ákveðið að aðeins yrðu tvö þeirra laga sem tilnefnd eru til Óskarsverðlauna flutt á hátíðinni. Það voru lögin All the Stars með Kendrick Lamar og SZA og Shallow með Lady Gaga.
Lady Gaga tók það ekki í mál sem varð til þess ákveðið var að öll fimm lögin sem tilnefnd eru verða flutt á hátíðinni.
Óskarsverðlaunahátíðin fer fram 24. febrúar næstkomandi og stefnir í að hún verði forvitnileg fyrir margar sakir eins og rakið hefur verið hér fyrir ofan.