„Þetta var fullt hús, fullur sigur,“ segir Heiðveig María í stuttu samtali við Vísi. Sjómannafélagið var dæmt til að greiða eina og hálfa milljón í sektargreiðslur vegna þess hvernig þeir stóðu að málum þeim sem sneru að framboði Heiðveigar Maríu. Hún hafi ætlað sér að bjóða sig fram til formanns félagsins en það endaði með því að hún var rekin úr félaginu. Vísir hefur fjallað ítarlega um málið eins og sjá má hér neðar, í tengdum fréttum.

Félagið hljóti að boða til nýrra kosninga
Hún segir að það hafi verið skýr ásetningur Sjómannafélags Íslands að fella úr gildi réttindi Heiðveigar með því að víkja henni úr félaginu og takmarka kjörgengi með lagabreytingu og það er tilefni til þess að sekta félagið fyrir slíka háttsemi.
Heiðveig María telur víst að síðasta stjórnarkjör, sem fram fór á aðalfundi sem haldinn var í desember á síðasta ári, þar sem Bergur Þorkelsson áður gjaldkeri félagsins var kjörinn formaður, sé ógilt. En, hún gerir sér ekki alveg grein fyrir því hver næstu skref verða. Það sé í raun félagsins að bregðast við þeirri stöðu sem nú er upp komin.
Kolbrún segir að það hljóti að vera, að stjórnarkjörið sé ómark. „Félagið hlýtur að boða til nýrra kosninga í ljósi þessarar stöðu.“