„Það er engin ástæða til að örvænta eða að hafa áhyggjur af því að þannig geti farið að þessu sinni enda höfum við á síðustu dögum verið í góðu samtali og það eru allir á einu máli um það að markmiðið okkar allra er að ná sem lengst í keppninni,“ segir Skarphéðinn sem var gestur í síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag.
Mikið þurfi að ganga á til að vera dæmdur úr keppni
Skarphéðinn segir að aðstandendur keppninnar séu fullkomlega meðvitaðir um íslenska atriðið og fyrir hvað það stendur.„Það þarf mjög mikið til til að eitthvað gerist eða eitthvað í þá áttina til þess að atriði séu talin brjóta í bága við reglur keppninnar. Dæmin hafa sýnt það að það þarf mikið til. Við höfum séð fram á atriði sem hafa farið mjög nærri því að geta talist pólitísk án þess að vera dæmd úr keppni,“ segir Skarphéðinn sem bendir á að aðstandendur keppninnar fylgist að sjálfsögðu grannt með gangi mála.

Ekki lagt það í vana sinn að múlbinda listamenn
Aðspurður hvort búið sé að tala sérstaklega við liðsmenn Hatara um hvað sé leyfilegt í keppninni svarar Skarphéðinn:„Við erum ekki búin að leggja þeim einhverjar línur sérstaklega um hvað má segja og hvað má ekki segja. Við höfum ekki lagt lag okkar við það að múlbinda keppendur í Eurovision eða almennt listamenn hérna á RÚV en hins vegar gilda bara ákveðnar reglur um keppnina og við erum búin að fara yfir þessar reglur í sameiningu bara sem lið í því að undirbúa okkur fyrir Eurovision keppnina. Eftir að hafa farið yfir það þá eru allir samstíga í því að það hefur enginn áhuga á öðru en að ná sem lengst í keppninni og leggja allt í sölurnar og reyna að halda hérna gott partí 18. maí á laugardegi.“
Ekki borist formlegt erindi frá Ísrael
Skarphéðinn segir að þrátt fyrir að það sé mikið fjaðrafok á samfélagsmiðlum og jafnvel í ísraelskum fjölmiðlum sé mikilvægast að RÚV hafi ekki borist formlegt erindi eða fyrirspurnir frá Ísrael.„Umræður á samfélagsmiðlum, fréttaflutningur þar sem verið er að fjalla um umræður á samfélagsmiðlum það er ekki tilefni til að rjúka til og bregðast við með einhverjum formlegum hætti. Það er bara fullkomlega eðlilegur hluti af samfélagi nútímans að fólk hefur áhuga á að tala um allan fjandann og ekki hvað síst það sem gerist í fjölmiðlum og það sem er í sjónvarpinu og útvarpinu og út um allt. Það er bara mjög áhugavert og gaman að hafa skoðun á slíku. Það er ekki fyrr en við höfum einhver formleg erindi eða formlegar fyrirspurnir um eitthvað sem við sjáum ástæðu til að þurfa að bregðast við með einum eða öðrum hætti,“ segir Skarphéðinn.
Örfáir dagar til stefnu
Fjöllistahópurinn Hatari er frá því í gær í „fjölmiðlapásu“ til þess að geta einbeitt sér að atriðinu sjálfu því hópurinn þarf að skila af sér atriðinu fullkláruðu eftir helgi.„Það gerir sér enginn grein fyrir hvað það er ótrúlega umfangsmikið verkefni sem felst í því að þurfa að klára þetta atriði ekki bara lagið sjálft heldur uppsetninguna á atriðinu og útfærsluna á því. Það eru bara nokkrir dagar til stefnu,“ segir Skarphéðinn.