Skipunartími sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu rennur út um áramót, en Þórólfur Halldórsson var skipaður í embættið 1. janúar 2015. Nokkur styr hefur staðið um sýslumanninn, sem samþykkti beiðni Glitnis Holdco og lagði lögbann við fréttaflutningi Stundarinnar úr gögnum sem miðillinn hafði undir höndum af fjármálum og viðskiptum þáverandi forsætisráðherra landsins aðeins 12 dögum fyrir alþingiskosningarnar 2017.
Lögbannið varði í rétt tæpt ár eða þar til dómur Landsréttar var kveðinn upp í október síðastliðnum. Lokadómur féll í Hæstarétti fyrir helgi og lögbanni og öllum öðrum kröfum Glitnis Holdco endanlega hafnað.
Í dóminum kemur fram að lögbannið hafi verið sérstaklega íþyngjandi vegna þess hve stutt var til kosninga og umfjöllun miðlanna varðaði fjármálagerninga þáverandi forsætisráðherra og aðila sem tengdust honum.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort staða Þórólfs verður auglýst, samkvæmt svari við fyrirspurn Fréttablaðsins, en nokkur óvissa ríkir einnig um hver muni gegna stöðu ráðherra þegar ákvörðun um auglýsingu og skipun í stöðuna verður tekin.
Hyggist ráðherra auglýsa stöðuna ber að tilkynna sitjandi sýslumanni þá ákvörðun með sex mánaða fyrirvara, eða 1. júlí næstkomandi, Þá hafa forsvarsmenn Stundarinnar ekki tekið ákvörðun um hvort þeir höfða mál til heimtingar bóta vegna málsins.
Fjallað er um rétt til bóta í lögum um kyrrsetningu og lögbann. Ef gerðarþoli lögbanns er sýknaður í staðfestingarmáli um lögbann ber þeim sem krafðist lögbannsins að greiða honum bætur fyrir miska og fjártjón, þar á meðal fyrir spjöll á lánstrausti og viðskiptahagsmunum, sem telja megi að lögbannsgerðin hafi valdið.
Í slíku máli er heimilt að dæma skaðabætur að álitum, ef ljóst þykir að fjártjón hafi orðið en ekki sé unnt að sanna fjárhæð þess
