Vinnumálastofnun hefur fengið rúmlega 700 umsóknir frá fyrrverandi starfsfólki WOW air og rúmlega 500 frá starfsfólki annarra fyrirtækja.
Forstjóri Vinnumálastofnunar, Unnur Sverrisdóttir, býst við fleiri umsóknum frá fólki sem vann hjá WOW.
„Við höfum verið að skoða hversu margir hafa hakað við að þeir væru í námi af því að það hefur verið í umræðunni og það eru rúmlega 50, í kringum 7% af þeim sem hafa sótt um,“ segir Unnur.

Flugliðar lenda á milli
Freyja Rúnarsdóttir byrjaði sem flugfreyja hjá WOW air fyrir þremur árum. Hún var ráðin á þeim tíma sem flugfélagið stækkaði. Eftir um ár var henni boðin staða yfirflugfreyju.10-15% flugliða sem stunduðu nám með starfi hjá WOW lenda á milli í kerfinu og eiga hvorki rétt á námslánum né atvinnuleysisbótum.
Freyja er ein þeirra sem leysti sín mál með því að skrá sig úr námi svo hún eigi rétt á því að sækja um atvinnuleysisbætur. Hún seinkar skilum mastersritgerðarinnar sem hún var að vinna í samstarfi við mannauðsdeild WOW air.
„En því miður eru mjög margir fyrrum samstarfsfélagar mínir ekki í þessari stöðu,“ segir Freyja.
Flugliðarnir eiga inni laun vegna vinnu hjá WOW í mars og laun fyrir þriggja mánaða uppsagnarfrest.
Freyja segir að flugliðar vilji að Vinnumálastofnun greiði það sem þeir eiga inni þangað til ábyrgðarsjóður launa grípur inn í, sem verður í fyrsta lagi eftir fjóra mánuði.
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir lögin skýr hvað þetta varðar, óheimilt sé að greiða bætur til fólks sem er í fullu námi eða námi sem nemur meira en 20 ECTS einingum.

Cargolux kynnti starfsemina
Fulltrúar flugfélagsins Cargolux kynntu starfsemi fyrirtækisins á Nordica hótelinu í morgun. Um 80 flugmenn mættu á kynninguna og 40 þeirra sóttu strax um vinnu í kjölfarið.Brynjar Örn Sveinjónsson, yfirflugstjóri hjá Cargolux, segir að fyrirtækið þurfi að fylla 60-70 stöður flugmanna vegna þriggja nýrra Boeing 747 flugvéla félagsins á árinu. Reynt verði að hraða ferlinu sem mest og hefja þjálfun flugmanna í maí svo þeir geti hafið störf í júní.