Starfsmennirnir hafa leitað til Vinnumálastofnunar og óskað eftir því að undanþága verði gerð til þess að koma til móts við þá sem sjá fram á mikið tekjutap vegna atvinnumissis en eins og kunnugt er hætti flugfélagið starfsemi þann 28. mars síðastliðinn, aðeins þremur dögum fyrir mánaðamót.
Starfsmönnunum hafa borist þau svör að ekki verði hægt að veita undanþágu frá reglunum. Ef einstaklingur er í 10 til 20 einingum þarf að gera skerðingarsamning sem þarfnast staðfestingu frá háskóla. 11 einingar skerða atvinnuleysisbætur um 37% en 20 einingar skerða atvinnuleysisbætur um 66%.
Þeir einstaklingar sem eru í meira en 20 einingum geta ekki komið inn á atvinnuleysisskrá án þess að skrá sig úr áföngum en fullt nám á hverri önn eru 30 einingar.
Dæmi um að flugfreyjur hafi sagt úr námi
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir það rétt að fjöldi starfsmanna WOW air hafi leitað til þeirra á síðustu dögum, þar á meðal námsmenn. Staðan sem nú sé komin upp er nánast fordæmalaus enda rúmlega þúsund manns sem misstu vinnuna á einu bretti.Hún segir þó lögin vera skýr um málefni námsmanna en líkt og áður kom fram geta einstaklingar í fullu námi ekki sótt um atvinnuleysisbætur. Hún hvetur þó fólk til þess að leita til ráðgjafa vinnumálastofnunnar þurfi það á aðstoð að halda en ljóst er að stór hópur námsmanna, sem áður störfuðu hjá WOW air, verði tekjulausir um næstu mánaðamót.
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir í samtali við Vísi að hún viti um einstaka félagsmenn sem hafi neyðst til að skrá sig úr námi til að eiga rétt á úrræði.
Hún segir einhverja tugi félagsmenn falla á milli þilja, það er að eiga annað hvort ekki rétt á atvinnuleysisbótum eða námsláni, sökum þess að vera í fullu námi meðfram fullu starfi.
„Það er grafalvarlegt þegar kemur upp sú staða að ekkert sé til staðar í kerfinu sem grípur námsmann í þessari stöðu,“ segir Berglind.