Alþingi kom saman í dag að loknu páskaleyfi. Fundurinn hófst á óundirbúnum fyrirspurnatíma klukkan 15.00.
Sigmundur tók fyrstur þingmanna til máls og hóf að lesa brot úr ræðu Bjarna frá því 22. mars í fyrra þar sem hann ræddi um raforkumarkaðsmál.
„Það sem ég á svo erfitt með að skilja er áhugi háttvirts þingmanns og sumra hér á þinginu á að komast undir boðvald samevrópskra stofnana. Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana?“ spurði Bjarni sem þá gaf ekki mikið fyrir þau rök að Ísland væri þegar undir því.
„Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra?“ spurði Bjarni.
Spyr hvort Katrín vilji þiggja aðstoð Viðreisnar og Samfylkingar
Sigmundur beindi spurningu sinni til Katrínar.„Því spyr ég, minnugur þessarar góðu ræðu hæstvirts fjármálaráðherra - sem hæstvirtur forsætisráðherra hlýtur að muna eftir líka - er hæstvirtur ráðherra sammála mati hæstvirts fjármálaráðherra? Og ef svo er getur ráðherrann aðstoðað hæstvirtan fjármálaráðherra við að fylgja eftir þeirri skoðun og þeirri stefnu sem hann lýsti hér svo vel í ræðu sinni fyrir rétt rúmu ári síðan?
Ég veit að hæstvirtur forsætisráðherra getur ráðið og rekið ráðherra Sjálfstæðisflokksins og hlýtur fyrir vikið að geta veitt Sjálfstæðisflokknum aðstoð nú við að framfylgja stefnu þess flokks eða ætlar hæstvirtur forsætisráðherra frekar að þiggja aðstoð Viðreisnar og Samfylkingarinnar við að ganga gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins í málinu?“

Þriðji orkupakkinn liður í tveggja stoða lausn
Katrín svaraði um hæl að hún væri greinilega ekki jafn mikill aðdáandi Bjarna og Sigmundur afhjúpaði sig sem í ljósi þess að hún myndi ekki eftir ræðu Bjarna. Ræðan hafi þó vafalaust verið eftirminnileg.Hún segir að þriðji orkupakkinn sé liður í innleiðingu tveggja stoða lausnarinnar líkt og gert hefur verið í öðrum málum. „Á meðan við erum innan EFTA þá höfum við lagt áherslu á tveggja stoða lausnir hvort sem það er á sviði fjármálaeftirlits eða orkueftirlits og það á auðvitað við í þessu máli eins og öðru.“
Katrín bendir á að í þingsályktunartillögunni sem þingið hafi til meðferðar séu fyrirvarar „sem standast fullkomlega þá skoðun að við erum ekki knúin til að leggja hér sæstreng.“ Sæstrengur yrði ekki lagður nema Alþingi tæki ákvörðun þess efnis í framtíðinni.
Katrín sagði að auk fyrirvaranna við sjálfa þingsályktunartillöguna sé búið að leggja fram frumvarp sem felur það í sér að sæstrengur verði ekki lagður til Íslands nema með samþykki Alþingis.
„Það er töluvert önnur stefna en háttvirtur þingmaður stóð sjálfur fyrir þegar hann fór hér til Bretlands og undirritaði sérstaka viljayfirlýsingu um sæstreng með forsætisráðherra Bretlands á þeim tíma. Ég er á leiðinni til Bretlands og ég ætla ekki að skrifa undir viljayfirlýsingu um sæstreng með núverandi forsætisráðherra Bretlands,“ sagði Katrín og uppskar hróp og framíköll úr sal: „Það er rangt!“.
Katrín sagði hér væri vandað til verka.
„Ég legg á það áherslu að háttvirt utanríkismálanefnd gefi sér tíma til að fara yfir þetta mál og fari yfir öll þau vafaatriði sem uppi kunna að vera þannig að háttvirtir þingmenn geti tekið afstöðu með upplýstum hætti síðar í vor.“