Skiptum í þrotabú smálánafyrirtækisins Smálán ehf., sem fór í þrot árið 2016, lauk í upphafi mánaðar. Í Lögbirtingablaðinu í dag kemur fram að alls hafi verið gerðar kröfur í búið fyrir rúmlega 171 milljón króna en að skiptastjóri hafi samþykkt kröfur fyrir næstum 100 milljónir, þá sem almennar kröfur.
Af þeim 171 milljóna kröfum sem gerðar voru í búið voru næstum 5 milljónir svokallaðar búskröfur, veðkröfur voru rúmlega 41,5 milljónir og almennar kröfur námu næstum 125 milljónum króna. Eftirstæðar kröfur reyndust um 9000 krónur.
Almennir kröfuhafar fengu ráðstafað rúmlega 62% upp í samþykktar kröfur, sem námu tæplega 100 milljónum sem fyrr segir.
Sjá einnig: Komist upp með grímulaus lögbrot
Smálán ehf. var stofnað árið 2012 og var í 100% eigu DCC ehf., en skráður eigandi þess var Leifur Alexander Haraldsson. Fyrirtækið tengdist jafnframt öðru smálánafyrirtæki, Kredía ehf., en Marion Mengela var skráður sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá báðum félögunum. Kredía var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2017 og nam gjaldþrot þess alls 252 milljónum króna.
Kredía og Smálán höfðuðu mál á hendur Neytendastofu árið 2014. Ætlunin var að ógilda ákvörðun áfrýjunarnefndar neytendamála sem setti út á útreikning fyrirtækjanna á heildarlántökukostnaði. Neytendstofa var að endingu sýknuð af kröfum fyrirtækjanna.
Þrátt fyrir gjaldþrotið eru Smálán ekki af baki dottin. Kredia, Hraðpeningar, Smálán, 1909 og Múla eru nú öll skráð í Danmörku. Vefsíður þeirra eru með danskt lén þrátt fyrir að vera á íslensku. Lénin eru í eigu tékkneska fjárfestingarfyrirtækisins Verrier Group sem er til húsa í blokk í Prag, eins og fjallað var um í lok mars.
Kröfðu Smálán ehf. um 171 milljón

Tengdar fréttir


Gjaldþrot Kredia nam 252 milljónum króna
Engar eignir fundust í búi Credit one ehf., sem rekið hafði smálánafyrirtækið Kredia.

Komist upp með grímulaus lögbrot
Í kjölfar þess að Alþingi setti lög á starfsemi smálánafyrirtækja árið 2013 lögðu fyrirtækin upp laupana hvert af öðru. Þau lifa þó enn góðu lífi og halda áfram að lána Íslendingum íslenskar krónur með mörg hundruð prósent vöxtum.