Þingforseti bað Ingu Sæland að gæta orða sinna í umræðu um þungunarrof
Margir þingmenn kvöddu sér hljóðs um frumvarp heilbrigðisráðherra en stuðningsmenn frumvarpsins fjölmenntu einnig á pallana til að fylgjast með umræðunni. Nokkrir þingmenn, sem ýmist greiddu atkvæði gegn eða sátu hjá eftir aðra umræðu um frumvarpið í síðustu viku, fóru þess á leit við forseta að málinu yrði frestað.
Forseti féllst ekki á ósk um að fresta þriðju og síðustu umræðu, en atkvæðagreiðsla um frumvarpið fer þó ekki fram fyrr en í næstu viku. Nokkrum af andstæðingum frumvarpsins var verulega heitt í hamsi.
Sjá einnig: Bein útsending: Hart tekist á um þungunarrof á Alþingi
„Það er markmiðið að þetta verði gert og það hefur þessi salur sannarlega sýnt með frábærum húrra hrópum og gleðihljóðum, þegar við ætlum að taka hér ákvörðun um það að 22 vikna ófullburða barn verði drepið í móðurkviði, og ég mun alltaf segja nei,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sem lagst hefur gegn frumvarpinu.
„Forseti biður háttvirtan þingmann að gæta orða sinna og hafa ró í salnum og mun ekki líða orðbragð eða framgöngu af þessu tagi,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, forseti alþingis.
Tengdar fréttir

Þungunarrofsfrumvarpið afgreitt úr nefnd í morgun
Lagt var til á fundi nefndarinnar að boðaðir yrðu fleiri gestir til að ræða frumvarpið, m.a. landlæknir að nýju, en beiðnirnar nutu ekki stuðnings meirihluta nefndarinnar.

Frumvarp um þungunarrof gæti orðið að lögum í dag
Frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof gæti orðið að lögum í dag, en með frumvarpinu verður konum heimilt að undirgangast þungunarrof allt fram á 22. viku meðgöngu.

Leggja fram breytingartillögur við þungunarrofsfrumvarpið
Páll vill stytta tímann í 20 vikur en Anna Kolbrún 18 vikur.

Sjö karlkyns þingmenn Sjálfstæðisflokks sátu hjá í atkvæðagreiðslu um þungunarrof
Frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða að lokinni annarri umræðu á Alþingi í dag.

Þungunarrofsfrumvarp ýmist talið stærsta kvenfrelsismál aldarinnar eða siðferðislega rangt
Þungunarrofsfrumvarp heilbrigðisráðherra verður áfram rætt í velferðarnefnd Alþingis en næsti fundur er á mánudag.

Ein ströngustu þungunarrofslög Bandaríkjanna staðfest
Lögin kveða á um að þungunarrof sé bannað eftir að hjartsláttur greinist í fóstri. Læknar benda á að slíkt geti verið misvísandi og að margar konur viti ekki af því að þær séu óléttar á því stigi.