Salka bar fimm hressum og heilbrigðum lömbum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. maí 2019 20:00 Salka með lömbin sín fimm, þrjár gimbrar og tvo hrúta. Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Ærin Salka á bænum Teigi í Fljótshlíð er frjósöm kind því hún bar fimm lömbum, þremur gimbrum og tveimur hrútum. Lömbunum og Sölku heilsast vel. Á Teigi er rekið myndarlegt fjárbú og kúabú en bræðurnir Guðni og Tómas, ásamt foreldrum þeirra og fjölskyldum reka þar félagsbú. Á bænum er um 700 fjár og sauðburður að komast á fullan skrið. Ærin Salka kom á óvart í gær þegar hún bar fimm lömbum en hún er sex vetra og hefur alltaf verið mjög frjósöm. „Þetta eru fínustu lömb, hress og heilbrigð. Burðurinn gekk ágætlega hjá henni, það komu reyndar tvö á afturfótunum, það var eitthvað sem við leystum auðveldlega. Þetta eru sæðingalömb undan sæðingahrúti, þannig að eitthvað af þeim verður líklega í ásetningshópnum í haust“, segir Tómas Jensson, bóndi á Teigi.Tómas með lömbin fimm sem braggast vel.Magnús HlynurSauðburður hefur farið vel á stað á Teigi en þeir bændurnir eiga von á um 1300 lömbum í vor. „Við reynum að skipta næturvöktunum á okkur og gegnum og svo þarf að fara í fjósið líka þannig að það er nóg að gera. Þetta er mjög skemmtilegur tími, sérstaklega ef vel gengur“, bætir Tómas við. Búfræðingurinn fékk að rifja upp gamla takta og tók á móti einu lambi á Teigi, myndarlegum hrúti, sem fékk strax nafnið Magnús.
Dýr Landbúnaður Rangárþing eystra Mest lesið Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Fleiri fréttir Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Steindór Andersen er látinn Sjá meira