Slysið varð með þeim hætti að bíl sem ekið var vestur Álfhellu var beygt í veg fyrir mótorhjól sem kom á mikilli ferð úr gagnstæðri átt. Ökumaður mótorhjólsins, 25 ára gamall karlmaður, kastaðist af hjólinu í slysinu oglést á sjúkrahúsi tveimur dögum síðarvegna áverka sem hann hlaut í slysinu.
Hafði ítrekað verið sviptur ökuréttindum
Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysasem kom út á föstudag eru orsakir slyssins raktar til þess að ökumaður bílsins hafi beygt í veg fyrir mótorhjólið og að mótorhjólinu hafi verið ekið á of miklum hraða, en hraði mótorhjólsins rett fyrir slysið var reiknaður á bilinu 83 km/klst til 103 km/klst. Líklegasti hraði var metinn um 93 km/klst en hámarkshraði á Álfhellu er 50 kílómetrar.
Við rannsókn málsins kom í ljós að maðurinn hafði eignast mótorhjólið fimmtán dögum fyrir slysið og fengið það skráð á nafn sitt sama dag. Er það mat Rannsóknarnefndar að taka þurfi til skoðunar hvort og þá hvernig megi koma í veg fyrir að einstaklingar sem ekki hafi aflað sér ökuréttinda eða hafi verið sviptir ökuréttindum ævilangt séu skráðir eigendur að ökutækjum án athugasemda.
Er því beint til Samgönguráðuneytisins að taka það til skoðunar auk þess sem að brýnt er fyrir ökumönum að líta tvisvar eftir umferð áður en beygja er tekin fyrir umferð úr gagnstæðri átt. Þá er einnig bent á að hraðakstur langt yfir leyfilegum ökuhraða valdi þeim sem hann stunda og öðrum vegfarendum mikilli hættu.
Lesa má skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa hér.