Þingmenn Miðflokksins töluðu um þriðja orkupakkann í alla nótt

Til marks um það má benda á mælendaskrá Alþingis klukkan 6:10. Þá var Birgir Þórarinsson í pontu og á eftir honum á skránni voru þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Jón Þór Þorvaldsson, Birgir Þórarinsson svar svo aftur á mælendaskrá og á eftir honum var Karl Gauti Hjaltason. Allir eru þingmenn Miðflokksins.
Þingfundinum lauk klukkan 6:18 þegar umræðunni um tillöguna var frestað.
Tillagan var afgreidd úr utanríkismálanefnd Alþingis á mánudaginn og kvörtuðu þingmenn Miðflokksins þá yfir meðferð málsins. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður nefndarinnar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þó að nefndin hefði unnið vel að málinu og fengið til sín fjölda gesta.
„Við höfum að mínu mati náð að svara öllum þeim spurningum og vangaveltum sem hafa komið upp vegna málsins,“ sagði hún við fréttastofu á dögunum.
Tengdar fréttir

Sigmundur Davíð einn á móti þriðja orkupakkanum í utanríkismálanefnd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði á Alþingi í gærkvöldi í umræðu um þriðja orkupakkann að veik staða Eftirlitsstofnunar EFTA gagnvart ACER, stofnun Evrópusambandsins, hefði það í för með sér að gengið væri framhjá tveggja stoða kerfi EES-samningsins með þriðja orkupakkanum.

Gunnar Bragi hafði alla helgina til að skrifa minnihlutaálit
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir ekkert hæft í þeirri staðhæfingu Miðflokksmanna að málsmeðferð utanríkismálanefndar vegna þriðja orkupakkans hafi verið óboðleg. Logi hrósar formanni nefndarinnar fyrir fagleg vinnubrögð.

Áslaug Arna segir Sigmund snúa út úr
Formaður utanríkismálanefndar brást illa við ummælum formanns Miðflokksins sem hann hafði uppi í gær, en hann gaf í skyn í fjölmiðlum að fundi utanríkismálanefndar um þriðja orkupakkann á fimmtudag hefði verið haldið leyndum fyrir sér.

Nýmæli að Ísland fái áheyrn hjá stofnunum Evrópusambandsins
Áheyrn Íslands hjá miðlægri stofnun Evrópusambandsins á sviði orkumála, sem getur tekið bindandi ákvarðanir fyrir aðildarríki sambandsins, er til að tryggja að ekki verði röskun á tveggja stoða kerfi EES-samningsins, að sögn Birgis Tjörva Péturssonar sem vann álitsgerð um þriðja orkupakkann.

Andstæðingar orkupakkans afhentu varaforseta undirskriftir
Orkan okkar segist hafa safnað tæplega 13.500 undirskriftum gegn samþykkt þriðja orkupakkans.

Sigmundur segir áburðardreifara VG farna af stað
Sigmundur segir RÚV jafnan hafa áhyggjur af stjórnmálamönnum sem hlýddu ekki kerfinu og gerði slíka menn tortryggilega og benti hann RÚV á það að jafnan vantaði einhverja þingmenn á nefndarfundi.