Tveir íbúar í Laugardal lýstu áhyggjum sínum af Secret Solstice í Bítinu í gær og sökuðu aðstandendur keppninnar um að hafa ekki nægilegt samráð við nágranna. Var m.a. vísað til fíkniefnaneyslu á hátíðinni og skemmtanahalds í hverfinu langt fram eftir nóttu.
Sjá einnig: Íbúar í Laugardalnum beita sér gegn Secret Solstice
„Ég held að það hafi kannski verið það sem særði mest í þessu viðtali í gær. Af því að við höfum lagt okkur gríðarlega fram síðustu ár í þessu,“ segir Jón Bjarni.
Aðstandendur hátíðarinnar hafi fylgst náið með umræðu í íbúahópum í Laugardalnum og tekið umsagnir um hátíðina síðustu ár til sín.
„Það segir sig sjálft að gagnrýni er til þess að vinna með hana. Bara fyrir hátíðina í fyrra held ég að ég hafi mætt á 30-40 fundi með alls konar hagsmunaaðilum og fólki hérna í hverfinu og annars staðar til að finna lausnir.“
Viðtalið við Þórunni Steindórsdóttur og Vilhjálm Vilhjálmsson, íbúa í Laugardal, frá því í gær má hlusta á í spilaranum hér að neðan.
Inntur eftir viðbrögðum við ásökunum um kennitöluflakk við eigendaskipti hátíðarinnar segir Jón Bjarni að veðrið í fyrrasumar hafi orðið fyrri eigendum að falli.
„Það sem gerðist er að þessi hátíð varð fimm ára síðasta sumar. Það sem gerðist var að það gekk ekki sérstaklega vel síðasta sumar því það var hrikalegt veður sem setti strik í reikninginn. Og fyrri eigendur misstu hátíðina frá sér. Það kom nýr eigandi sem eignaðist vörumerkið frá kröfuhafa gamla félagsins.“
Þá vonast Jón Bjarni til þess að veðrið muni ekki leika hátíðina í ár jafngrátt og í fyrra.
„Við skulum vona að þetta gangi upp í sumar. Menn eru að vanda sig núna og það er náttúrulega búið að breyta hátíðinni töluvert.“
Secret Solstice verður haldin helgina 21.-23. júní með breyttu sniði en síðustu ár. Þannig mun dagskrá ljúka í Laugardal fyrir miðnætti öll kvöldin en dagskráin flyst því næst niður í miðbæ. Þá hefur hátíðardögum einnig fækkað úr fjórum í þrjá.
Viðtalið við Jón Bjarna má hlusta á í heild í spilaranum hér að neðan.