Hútar gerðu drónaárásir í Sádi-Arabíu Gunnar Reynir Valþórsson og Samúel Karl Ólason skrifa 14. maí 2019 12:13 Mynd frá því í desember sem sýnir dróna sem Hútar notuðu til árásar í Sádi-Arabíu. Vísir/AP
Uppreisnarmenn Húta í Jemen hafa lýst yfir ábyrgð á drónaárás á mikilvæga olíuleiðslu í Sádi-Arabíu og aðra olíutengda starfsemi í morgun. Árás var gerð á dælustöð þar sem eldur kom upp og var dælingu hætt tímabundið. Þá var á sama tíma ráðist á tvær dælustöðvar nærri höfuðborginni Riyadh. Sádar hafa þar að auki haldið því fram að árásir hafi verið gerðar á flutningaskip á þeirra vegum undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Mikil spenna er nú á svæðinu en Bandaríkjamenn ákváðu nýlega að senda flugmóðurskip í Persaflóann auk þess sem bætt hefur verið í flota sprengjuflugvéla þeirra á svæðinu. Bandaríkjamenn saka Íran um að standa á bakvið skemmdarverkin, en Houthar í Jemen njóta stuðnings þeirra í borgarastríðinu sem þar geisar, á meðan Sádar og Bandaríkjamenn styðja stjórnvöld í Jemen. Í samtali við AP fréttaveitunna segir Mohamed Abdel-Salam, talsmaður Húta, að árásunum í morgun hafi verið ætlað að senda skilaboð til Sáda.„Þetta eru skilaboð til Sádi-Arabíu. Hættið árásum ykkar,“ sagði hann og bætti við að með árásunum vildu Hútar einnig bregðast við brotum Sáda gegn íbúum Jemen.
Bandaríkin Íran Jemen Sádi-Arabía Mest lesið Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Fulltrúi borgarinnar harðneitað að tala nema á íslensku Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Breyting á samsköttun hafi mest áhrif á tekjuháa karla yfir fertugu Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Geti sagt fyrir um eldgos við höfuðborgarsvæðið með nokkurra vikna fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira