„Flýgur fiskisaga,“ segir Brynhildur létt í bragði. Þegar Vísir náði tali af henni var klukkan ekki nema sjö í stórborginni og Brynhildur að fara að hlaupa í Central Park. Hún segir það rétt vera að hún sé að velta þessu fyrir sér. Alvarlega.
Brynhildur segir asnalegt að svara spurningunni um hvort margir hafi skorað á hana að gera svo. „Þetta hefur alveg verið rætt en það er ekki eins og þúsundir Íslendinga liggi á bjöllunni. Og, ég hef til 1. júlí að hugsa þetta.“
Átök um Þjóðleikhúsið
Eins og Vísir hefur greint frá takast þau hart á Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara og Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri. Birna fordæmir aðgerðaleysi menntamálaráðuneytis og þjóðleikhúsráðs, sem hafa vísað erindum hennar um kvartanir vegna stjórnunarstíls Ara sem hún hefur viljað tengja við #metoo en Ari bendir á að þessi klögumál séu tilhæfulaus og óræð; þeim hafi verið vísað frá eftir athugun.
Ari telur um klára atlögu að sér að ræða. Þá hafa kunnugir sem Vísir hefur rætt við bent á að tímasetningin, það að þessi mál séu að koma upp nú og aftur, sé engin tilviljun; þegar staðan Ara hefur verið auglýst laus til umsóknar.
Staðan laus og tíminn líður
Brynhildur segir þetta leiðindamál en hún hafi að undanförnu starfað hjá Borgarleikhúsinu. Og umsókn af hennar hálfu sé algerlega á hennar forsendum.„Það sækir enginn um til höfuðs einhverjum öðrum. Það er gríðarleg ábyrgð sem maður er að taka á sig með því að rétta upp hönd. Þeir sem telja sig eiga erindi verða að láta í sér heyra. Ef þú gerir ekkert gerist ekkert.“
Brynhildur segir það svo að staða sé laus til umsóknar. Eins og um er að ræða þegar stjórnsýslan er annars vegar. Auglýst til fimm ára. Hún hljóti þá að vera laus og allir sitji við sama borð gagnvart henni.

Fimm ár eru fimm ár
Nú hefur það orðið einskonar hefð að sækist menn eftir öðru tímabili, en Ari er nú að ljúka fimm árum og hefur gefið út að hann vilji sitja áfram, þá teljist það eðlilegt að þeir haldi áfram. Brynhildur segir að allur gangur sé á því. Stefán Baldursson sat til dæmis þrjú tímabil.„Fimm ár eru fimm ár og ég myndi telja að það væri engin hneisa að klára slíkt starf á þeim tíma. Þetta er listræn stjórnunarstaða, við búum í mjög litlu samfélagi og það þarf að vera eðlileg hreyfing,“ segir Brynhildur sem gerir nánar grein fyrir afstöðu sinni. Hún segir að það taki vissulega tíma fyrir alla stjórnendur að koma sér inn í stöður.
„Nýr stjórnandi tekur við á ári forvera sinna. Allir ganga þarna inn með sína framtíðarsýn. Þetta er ekki bara að taka sér stöðu við færibandið og halda áfram. Ég hef engar sérstakar skoðanir á því, eðlilegt í opinberum geira að þetta sé svona. En það er bara ákvörðun hvers menntamálaráðherra fyrir sig, ef staðan er auglýst. Þá er það bara þannig. Þá á ekkert að vera að pæla í því frekar. Þetta er mín afstaða. Til hvers að vera að auglýsa stöðuna annars? Fimm ár er ágætur tími og ekkert að því.“