Margt var um manninn á Vinnustofu Kjarvals við Austurvöll þar sem meirihlutinn í Reykjavík fagnaði eins árs afmæli. Afmælið var haldið laugardaginn 15. júní en meirihlutasamstarf Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna fór formlega af stað 12. júní 2018 í kjölfar borgarstjórnarkosninga.
Stormasamt hefur verið í borgarstjórn á þessu fyrsta ári nýs meirihluta og þótti flokkunum afmælið ærið tilefni til að þakka sínu fólki fyrir stuðninginn. Ekki var annað að sjá en fólk skemmti sér vel í partíinu og nyti útsýnisins yfir miðborgina sem skartar sínu allra fegursta eftir blíðviðri síðustu vikna. Oddvitar flokkanna léku á als oddi og þökkuðu sínu fólki innilega fyrir vel unnin störf og kærkominn stuðning.
Meirihluti borgarstjórnar fagnar árs afmæli

Mest lesið







Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út
Lífið samstarf

Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum
Tíska og hönnun


Fleiri fréttir
