Lögmenn Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska tæknirisans Huawei, biðluðu í gær til Davids Lametti, dómsmálaráðherra Kanada, um að meðferð á framsalsbeiðni Bandaríkjanna á hendur Meng yrði hætt. Þetta sagði í fréttatilkynningu lögmannanna.
Sagði þar að Lametti ætti að „nýta vald sitt til þess að draga málið til baka þar sem enginn grundvöllur væri fyrir framsalsbeiðninni og að það myndi þjóna hagsmunum Kanada að láta málið niður falla“.
Meng var handtekin í Vancouver að beiðni Bandaríkjamanna í desember síðastliðnum. Bandaríkjamenn saka hana um bankasvindl og halda því fram að hún hafi blekkt banka og reynt að leyna meintum viðskiptum Huawei sem áttu að hafa brotið gegn viðskiptaþvingunum.
