Íbúi íbúðarinnar á Eggertsgötu þar sem eldur kviknaði á sjöunda tímanum í kvöld var í annarlegu ástandi þegar hún var færð á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar, aðstoðayfirlöglegluþjóns, verður hún vistuð í fangageymslu í nótt þangað til hægt verður að yfirheyra hana.
Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu en Jóhann Karl sagði rannsókn á eldsupptökum hefjast í fyrramálið.
Haft er eftir slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu að töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni en reykkafarar slökktu eldinn um klukkan hálf sjö.
