„Þorgerður kóngsdóttir í Klofningi á augljóslega erfitt með að kyngja þeirri staðreynd þótt hún viðurkenni hana, en bindur vonir sínar við að einhverjar skjátur kunni að rekast yfir ryðgaðan gaddavírinn til smáflokksins sem er á göngunni sem slíkra flokka bíður ætíð sé sæmilega tekið á móti.“
Svo lýkur pistlinum sem ber vitni um verulega flókna stöðu á hægri væng stjórnmálanna. Þó pistillinn sé nafnlaus þarf engum blöðum um það að fletta að þarna heldur Davíð, fyrrverandi foringi Sjálfstæðisflokksins, um penna og otar honum í átt að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Davíð gerir nýlegan pistil hennar að umfjöllunarefni og finnur efni hans flest til foráttu.
Kóngsdóttirin sem skrifar í Helgablaðið málgagn Viðreisnar
Eins og Vísir hefur fjallað ítarlega um eru greinarskrif Davíðs í Morgunblaðið farin að valda forystu flokksins verulegum ónotum, ama og vandræðum. Davíð er eindreginn andstæðingur 3. orkupakkans, gengur þar í takti við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins, og telja nú margir Sjálfstæðismenn svo komið að Morgunblaðið geti ekki lengur talist málgagn Sjálfstæðisflokksins.Sú staða út af fyrir sig sætir tíðindum og eflaust vilja þeir sem tala um að Morgunblaðið hafi mátt á við sem áður var meina að fylgisaukningu sem merkja má við Miðflokkinn megi einmitt rekja til stuðnings Davíðs og Morgunblaðsins við Sigmund Davíð og hans menn. Enda talar ritstjóri Morgunblaðsins eins og sá sem valdið hefur.

„Þorgerður skrifar í grein í málgagn Viðreisnar, Helgablaðið, sem kallað er, og minnir á að hún „hafi verið í hópi fólks sem stóð andspænis þeirri þungu ákvörðun að láta leiðir skilja með Sjálfstæðisflokknum.“Ekki er víst að forysta Sjálfstæðisflokksins geti varpað öndinni léttar við það að Þorgerður og Viðreisn sé skotspónn hins úfna ritstjóra. Því hún er hvergi nærri laus af önglinum og eru hrósyrði Þorgerðar um nokkra forystumenn flokksins einmitt höfð þeim til háðungar, í meðförum Davíðs. Sá sem á Þorgerði að vini þarf enga fleiri:
Leynimakk ríkisstjórnar um orkupakka
„Næst sneri Þorgerður að deilum í Sjálfstæðisflokki eftir uppnám er leynimakk ríkisstjórnar um orkupakka barst upp undir yfirborð svo braut á. Fyrstu tveimur pökkunum var lætt í gegn svo engan grunaði nokkuð ljótt. Þar var mjög nærri stjórnarskránni höggvið. Nú þegar pakkarnir þrír liggja saman fyrir þarf eindreginn brotavilja til að hafna ásökunum um stjórnarskrárbrot. En Þorgerður segir að nú „blasi við ein grimmustu innanflokksátök sem sögur fara af í áratugi“ og lætur eins og þá horfi hún til gjörvallrar sögu flokkakerfisins.“
„Þessi fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokks kynnti fyrirvaralaust brottför sína þaðan og jafnframt eins og í framhjáhlaupi að Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður, yrði samferða sér út. Kúnstug aðferð það,“ skrifar Davíð sem er eins og fíllinn og mun seint gleyma því eða fyrirgefa þegar Þorgerður sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum.
Þorgerður Katrín sem fauk í viðreisnargolunni
Davíð rekur sig í gegnum pistil Þorgerðar og kemur þar að þegar hún beinir orðum sínum að Bjarna Benediktssyni formanni flokksins. Sem að sögn Davíðs reyndi lengi að gera Þorgerði til hæfis „áður en hún fauk í viðreisnargolunni“.Og áfram gengur dælan:
„Nú segir Þorgerður að vondir menn hafi formanninn að háði og spotti „með því að benda í sífellu á að hann hafi verið á móti málinu í byrjun en sé því nú fylgjandi af óskiljanlegum ástæðum“. En segir svo, að „ástæðan fyrir skoðanaflökti formannsins sýnist mér leiða af stöðu hans í þverklofnum flokki. Í byrjun umræðunnar vissi hann að það var ekki stuðningur í baklandinu. Eftir framgöngu varaformanns, ritara og utanríkisráðherra hefur hann talið að nægjanlegur stuðningur væri kominn þannig að honum væri óhætt að tala eins og hjarta hans slær. Það virðist ekki hafa verið rétt stöðumat“.
Þetta segir Davíð með ólíkindum og allt hér á haus. Sem má til sanns vegar færa en það fer sjálfsagt eftir því hver horfir hvern og hvað má sjá á hlið.