Kranabíll ók upp undir brú á Vesturlandsvegi við Stórhöfða á fimmta tímanum í dag. Nokkrar umferðartafir urðu vegna óhappsins nú á sjötta tímanum en slökkvilið lauk vinnu á vettvangi um korter yfir fimm. Mbl.is greindi fyrst frá.
Bílnum var ekið undir brúna með kranann uppi, með þeim afleiðingum að árekstur varð. Þá brotnaði eitthvað af krananum en slynkur komst á bílinn og ökumaðurinn kastaðist upp í loft. Honum varð þó ekki meint af, að sögn varðstjóra.
Árekstur á Vesturlandsvegi þegar kranabíl var ekið á brú

Tengdar fréttir

Ný tegund hraðamyndavéla á Grindavíkurvegi
Bæjarstjóri Grindavíkur bindur vonir við að myndavélaeftirlitið dragi úr hraða inn til bæjarins.

Banaslys skammt frá Hólmavík
Ökumaður bifhjóls lést eftir alvarlegt umferðarslys á Innstrandavegi, skammt frá Hólmavík, síðdegis í gær.

Búið að opna fyrir umferð á Suðurlandsvegi
Suðurlandsvegi var lokað eftir alvarlegt umferðarslys rétt vestan við Hvolsvöll á sjötta tímanum í dag