Diljá byrjar að vinna aftur í september eftir fæðingarorlof og ætla þær mæðgur að nýta tímann þangað til í að ferðast og skoða heiminn.
Makamál fengu að heyra hver Bone-orðin hennar Diljá eru.
ON:
1. Fólk sem er heiðarlegt og auðmjúkt er líka fullt af sjálfsöryggi og sjálfstrausti. Þetta helst svo fallega í hendur. Og verður fyrir vikið mjög aðlaðandi manneskja.
2. Fólk sem fær mig til að rifna úr hlátri er besta fólkið.
3. Fólk sem spyr réttu spurninganna, af áhuga, og hlustar svo á það sem ég hef að segja lætur mig hvíla vel í sjálfri mér. Það er gott.
4. Að vera heilsteyptur er að vera ekki krumpaður. Fólk sem hefur aðeins kíkt inn á við og skoðað, ræktað sjálfið, kveikt ljósin og náð tengingu við sig og aðra. Það fólk hrífur mig.
5. Lífið má ekki að vera of flatt og leiðinlegt. Það þarf að vera smá hamagangur, ævintýragirni og spenna líka.
OFF:
1. Það er fátt sem stuðar mig jafn mikið og besservisserar og hrútskýrendur. Á sama tíma finn ég líka til með þessum sem iðka þá hegðun. Finn til með þeim fyrir að liggja á þessum ömurlega botni mennskunnar.
2. Ég greindi sjálfa mig með röskunina “Misophonia” samkvæmt einhverjum leiðbeiningum á netinu. Ákveðin hljóð eins og smjatt geta gjörsamlega gengið frá mér. Afhverju er fullorðið fólk líka að smjatta? Hvað er að?
3. Fullorðinn karlmaður með “man-flu” að vorkenna sér er eins langt frá því að fá vorkunn frá mér og hægt er. Sérstaklega ef hann myndi segja hluti eins og “Mér er illt í mallanum og þarf að lúlla í koddann minn”.
4. Ég hef nú yfirleitt ekkert mikið út á útlit og fatastíl fólks að setja. En ef ég þyrfti að velja eitthvað þá myndi ég gefa mönnum með mjög sítt goatee-skegg og í kvartbuxum rauða spjaldið.
5. Fólk sem er uppfullt af fórdómum og dómhörku er að öllum líkindum líka fáfrótt, þröngsýnt og jafnvel mjög reitt fólk. Allir þessir eiginleikar hræða mig.
