Of snemmt er að fullyrða um orsök rútuslyssins við Hof í Öræfum þann 16. maí síðastliðinn. Rannsókn er enn í gangi en þó á lokametrunum. Þetta segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við Vísi.
Um var að ræða rútu með 32 kínverskum ferðamönnum innanborðs og slösuðust fjórir alvarlega. Rannsókn á rútunni gaf ekki tilefni til athugasemda og liggur fyrir að henni var ekki ekið umfarm leyfilegan hámarkshraða. Þá var ökumaðurinn ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna við aksturinn.
Sjá einnig: Rútan á eðlilegum hraða og bílstjórinn allsgáður
Í hádegisfréttum RÚV kom fram að líklegt þykir að um mannleg mistök hafi verið að ræða eða þá að sviptivindar hafi ollið því að rútan fór út af veginum. Að sögn Odds er enn of snemmt að fullyrða um slíkt á meðan rannsókn stendur enn yfir.
Búist er við því að rannsókn ljúki í næsta mánuði þegar öll gögn hafa skilað sér. Nú sé beðið eftir vottorði um áverka þeirra sem slösuðust og gæti það tekið töluverðan tíma.
Of snemmt að fullyrða um orsök rútuslyssins í Öræfum

Tengdar fréttir

Voru fæst í belti þrátt fyrir tilmæli bílstjóra
Búið er að ræða við bílstjóra rútunnar en hann hafði gefið farþegum tilmæli um að spenna beltin.

Tildrög rútuslyssins í Öræfum enn til rannsóknar
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að tildrög rútuslyssins í Öræfum síðastliðinn fimmtudag séu enn til rannsóknar.

Rannsókn á rútuslysi við Hof miðar vel
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að rannsókn á rútuslysinu sem varð við Hof fyrr í mánuðinum sé í fullum gangi og að henni miði vel.

Þriðja stórslysið á 100 kílómetra kafla á Suðurlandsvegi
Björgunarsveitarfólk sem var á leið á landsþing Landsbjargar á Egilsstöðum í gær var á meðal þeirra sem komu til aðstoðar á slysstað við Hof í gær þar sem að rúta með 32 kínverska ferðamenn auk ökumanns fór út af veginum.