Undir færsluna skrifar sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, en það er Ingibjörg Harðardóttir.

Heimildir Vísis herma að síðan færslan birtist hafi eigandi hundanna haft samband og til standi að sækja hundana.
Í 3. grein samþykktar um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi segir að leyfilegt sé að aflífa hund í óskilum „sé hans ekki vitjað innan sjö daga frá því eiganda var tilkynnt um handsömun hans , enda sé eigandi hundsins upplýstur um hvað vanræksla á að vitja ekki um hundinn getur haft í för með sér.“
Ekki liggur ljóst fyrir með hvort eigandi hundanna var látinn vita með öðrum hætti en í gegn um Facebook-færsluna, þar sem fréttastofu hefur ekki tekist að ná í Ingibjörgu Harðardóttur, sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps sem skrifar undir færsluna.
Netverjar ósáttir
Ljóst er að margir eru ósáttir við það að aflífa eigi hundana verði þeirra ekki vitjað og velta því upp hvort ekki sé hægt að leita annarra leiða, fari svo að eigendur hundanna skjóti ekki upp kollinum.
Þá bendir önnur kona á að sá sé almennt ekki hátturinn að aflífa hunda sem eru yfirgefnir af eigendum.
Ummæli við færsluna skipta tugum og mörgum verulega heitt í hamsi vegna málsins. Orð eins og „aumingjar,“ „ógeðslegt fólk“ og „djöfuls rugl“ hafa þá verið látin falla.
Ekki náðist í Ingibjörgu Harðardóttur, sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps sem skrifar undir færsluna, við vinnslu þessarar fréttar. Í svari á Facebook-síðu hreppsins kemur fram að hundarnir sem um ræði hafi oftar en ekki gengið lausir í sveitarfélaginu og kvartað undan þeim.
Svarið má sjá að neðan.
Svar frá hreppnum
Í Grímsnes- og Grafningshrepp er lausaganga hunda bönnuð og var það staðfest síðast með samþykkt þann 13. janúar 2012.
Hundarnir sem hér ræðir um hafa oftar en ekki gengið lausir í sveitarfélaginu og hefur verið kvartað undan þeim.
Þeir voru handsamaðir um helgina og er nú verið að auglýsa eftir eigendum þeirra.
í 2. gr samþykkta sveitarfélagsins um hundahald segir að hundar skuli aldrei ganga lausir á almannafæri heldur vera í fylgd með einhverjum sem hefur fullt vald á þeim.
Við brot á skilyrðum fyrrnefndar greinar skal fjarlægja viðkomandi hunda, sem hefur í þessu tilviki verið gert.
Yfirvöldum sveitarfélagsins er ekki skylt að geyma skráða hunda lengur en í tíu daga frá handsömun þeirra og er heimilt að láta aflífa hundana að þeim tíma liðnum.
Yfirvöldum sveitarfélagsins ber að auglýsa handsömun á hundum líkt og verið er að gera hér.
Vissulega vonumst við til þess að þurfa ekki að grípa til þessa örþrifaráðs og óskum því hér með eftir að eigendur gefi sig fram við hundafangarann.