Kolbeinn lagði af stað í gönguna 1. júlí og nú í morgun hófst síðasti spölurinn frá Selfossi til Reykjavíkur, þar áætlar hann að vera á milli 11 og 12 í kvöld. Kolbeinn hefur gengið að meðaltali 45 kílómetra á dag.
„Þetta er bara búið að ganga mjög vel, ég er reyndar búin að vera í mjög mikilli rigningu síðustu dagana en annars er búið að vera mjög heitt og fínt“, segir Kolbeinn.
En hvar fannst honum skemmtilegast að ganga og hvar var erfiðast að ganga?
„Ég myndi segja Suðurlandið, það er fínt, beinn vegur og þess háttar, alveg fallegt þó það sé mikið af ekki neinu í kringum mig. Það var erfiðast að ganga um Norðausturland, að fara í gegnum Möðrudalsöræfi, það var svolítið erfitt og í kringum Mývatn.

„Ég er komin upp í fjögur hundruð fimmtíu og tvö þúsund, sem er bara mjög gott. Ég held að ég geti klárað þessar fjörutíu og átta þúsund krónur í dag“.
En hvað verður það fyrsta sem Kolbeinn ætlar að gera þegar hann kemur heim til sín í kvöld?
„Ég ætla að fá mér pizzu og gera ekki neitt, fer svo á þjóðhátíð“.
Vilji fólk styrkja Kolbein og Samferða þá er reikningurinn 0370-13-005770 og kennitala 240997 - 2079.