Makamál höfðu samband við Áslaugu og fengu að forvitnast meira um hvað kynlífsröskun er og hvernig er hægt að meðhöndla hana.
Hver er skilgreiningin á kynlífsröskun?
Kynlífsraskanir eru mismunandi útgáfur af truflun í kynlífi. Þegar kynlífið gengur ekki eins og fólk óskar eða líffræðin segir til um að það eigi að gera, kallast það kynlífsröskun á fagmáli.
Mætti þá flokka kynlífsröskun sem sjúkdóm?
Nei, ekki beint sem sjúkdóm heldur notum við orðið röskun. Kynlífsröskun er samt sjúkdómsflokkur sem er sjálfstæður flokkur í sjúkdómsflokkunarkerfinu sem við notum hérna á Íslandi, en heyrði áður undir geðraskanir. Það er stigsmunur á röskun og sjúkdómi sem er óþarfi að þreyta fólk með.
Kynlífsraskanir eru flokkaðar eftir þeim áhrifum sem þær hafa á kynlífið en einnig er þeim skipt upp eftir líffræðilegu kyni.
Stundum koma þær fyrir til dæmis í ákveðnum athöfnum eða að þær eru alltaf til staðar, þ.e. gerast alltaf þegar reynt er að stunda kynlíf eða sjálfsfróun. Það skiptir líka máli hvort vandinn er tímabundinn eða hefur alltaf verið til staðar.

Einnig eru kynlífsraskanir flokkaðar eftir því hvar í kynlífinu þær byrja og fólk getur haft fleiri en eina röskun í einu, sumar fylgjast oft að.
Þær skiptast í:
- Truflun í löngun.
- Örvun.
- Getu.
- Sársauka sem fylgir kynlífi.

Risvandi og brátt sáðlát eru líka algengar ástæður fyrir því að menn leita til mín. Hjá konum er það svo algeng ástæða að þær finni fyrir sársauka við samfarir. Allar þessar truflanir hafa áhrif á ástarsambönd.En er fólk ekki feimið við að leita sér aðstoðar við kynlífstengdum vandamálum?
Fólkið sem leitar til mín er ekki endilega feimið að koma til mín en það tekur oft langan tíma að koma eftir að vandamálin byrja. Margir eru pínu stressaðir þegar þeir mæta fyrst og almennt veit fólk lítið um það hvernig ég vinn.
Flestir vilja ekki ræða vandamálið við aðra áður en það hittir mig en það hefur þó færst í aukana að fólk segi mér að það hafi rætt hvað það er að gera hjá mér við vini. Þetta heyrði ég varla fyrir nokkrum árum. Ég spái því að sá tími komi að okkur finnist eðlilegt að fara til kynlífsráðgjafa til að vinna í sambandinu og kynlífinu.Áslaug bætir því við að á síðustu árum höfum við komist mjög langt með að opna umræðuna og skilja mikilvægi geðheilbrigðis. Kynheilbrigði segir hún ekki minna mikilvægt svo að það hljóti að fylgja sömu þróun.
Mikilvægt að bæði pör og einstaklingar leiti sér ráðgjafar.
Bæði pör og einstaklingar mæta í kynlífsráðgjöf að sögn Áslaugar en hún segir að ef fólk sé í parasambandi þá séu atriði sem betra er að vinna með ef fólk mætir saman í ráðgjöf. Einnig segir hún að það sé margt sem einstaklingar geta unnið með í ráðgjöf ef þeir kjósa að koma einir.Einstaklingar koma stundum til þess að vinna með sjálfsmat sitt á því að vera kynvera. Byggja sig upp eftir sambandsslit eða fyrir nýtt samband.Geta kynlífsraskanir komið upp á öllum aldri?
Kynlífsraskanir geta komið á öllum aldri en sumar eru nátengdar því að eldast. Það eru eðlilegar breytingar sem verða með hækkandi aldri sem fólk mistúlkar stundum sem vandamál. Ef við lifum nógu lengi þá munum við upplifa vanda í kynlífi. Það er eðlilegt en oft skortir fólk fræðslu til þess að upplifa það ekki sem vandamál.
Sumir sem koma til mín hafa glímt við kynlífsröskun alla ævi. Þá er algengast að það eigi við um brátt sáðlát og sársauka við samfarir en þessi vandamál geta stundum fylgt fólki frá fyrstu kynlífsreynslu.

Kvíðahugsun eða rangar upplýsingar helstu ástæður kynlífsröskunar.
Ef ekki er um líkamlegar ástæður fyrir kynlífsvandanum að ræða eins og til dæmis sjúkdómar, þá segir Áslaug það algengast að vandinn stafi af kvíðahugsunum og röngum eða ónógum upplýsingum. Að hennar mati fær fólk ekki næga kynfræðslu.Kynlífsráðgjöf er samtalsmeðferð sem byggir á því að fræða og uppræta hugsanavillur sem hafa áhrif á hegðun eða kynlífið. Ég er því alltaf að vinna með það hvernig hugurinn hefur áhrif á kynlífið og kenna fólki í gegnum ákveðnar æfingar að þjálfa hugann svo líkaminn geti gert það sem hann er hannaður til að gera.En hver eru úrræðin?
Úrræðin eru annað hvort það sem maður getur gert heima fyrir, eins og að sinna almennu heilbrigði sínu. Það að borða, sofa og hreyfa sig reglulega hefur allt áhrif á kynheilbrigði. Einnig að tala um kynlífið við þann sem þú ætlar að stunda það með.
Ef það dugar ekki er hægt að leita til kynfræðings eða sálfræðings sem er sérmenntaður í kynlífsráðgjöf. Kynlífsráðgjöf er sérhæfð samtalsmeðferð þar sem notaðar eru aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og fjölskyldumeðferðar.
