Þar er haft eftir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að niðurstaðan sé góð einkum í ljósi þess að þess að merki séu um samdrátt í hagkerfinu. Sjálfstæðismenn sendu tilkynningu vegna árshlutareikningsins en þeir hafa farið fram á að óháðir matsmenn meti eignasafn Félagsbústaða.
„Tölurnar í rekstrinum eru allar á grænu og staða borgarinnar sterk. Við höfum verið að bæta fjármagni í skólamálin og velferðarmálin jafnt og þétt en á sama tíma erum við í stórum og miklum fjárfestingum um alla borg til dæmis í skólabyggingum, íþróttamannvirkjum, götum, torgum og hjólastígum. Árshlutauppgjörið gefur ágætar vísbendingar um framhaldið en við þurfum að halda vel á spöðunum áfram,“ er haft eftir Degi.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní 673 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 343 milljarðar króna og eigið fé var 330 milljarðar króna en þar af var hlutdeild meðeigenda 17,5 milljarður króna.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49% en var 49,4% um síðustu áramót.
Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.
Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. og Sorpa bs.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn sendu frá sér tilkynningu vegna árshlutareikningsins en þeir hafa lagt til að fengnir yrðu óháðir matsaðilar til að meta eignasafn Félagsbústaða hf þar sem matsbreytingar síðustu ára eru 50,8 milljarðar króna. Þannig hafi félagslegt íbúðarhúsnæði borgarinnar verið uppfært í bókum Félagsbústaða um sömu fjárhæð. Jafnframt er reiknaður hagnaður upp á sömu fjárhæð í samstæðu Reykjavíkurborgar.

Telja Sjálfstæðismenn að þessi hagnaður mun seint skila sér til borgarinnar enda standi ekki til að selja félagslegt húsnæði frá Félagsbústöðum. Hætta sé á að viðhaldsþörf íbúðanna sé meiri en gert hefur verið ráð fyrir. Kostnaður við viðhald getur því verið að miklu leyti ófyrirséður.
Fjármála- og áhættustýringarsvið borgarinnar bendir á í sex mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar að matsbreytingarnar segi lítið til um grunnrekstur Félagsbústaða hf.
Eyþór bendir á að skuldir og skuldbindingar haldi áfram að vaxa um tugi milljarða á fyrstu sex mánuðum þessa árs þrátt fyrir mikla skattlagningu.
„Þetta er ekki gott veganesti út úr lengsta hagvaxtarskeiði lýðveldissögunnar,“ segir Eyþór.