Kristinn skráði sig í tíu kílómetrahlaupið á fimmtudaginn. Hann tilkynnti við það tilefni að hann ætlaði að hlaupa til styrktar Félags um foreldrajafnrétti. Hann birtist hins vegar ekki á heimasíðunni Hlaupastyrkur þar sem áheitum var safnað. Velti hann fyrir sér hvort um þöggun væri að ræða.
„Ég velti því fyrir mér hvort þetta sé þöggun eins og málefnið hefur illilega rekist á, það má ekki ræða tálmanir og foreldrafyrringu.“
Hann hefði sent póst en fengið svör um að álagið væri mikið og ekkert hefði gerst.

Allir búnir á því í gær
Anna Lilja Sigurðardóttir er upplýsingafulltrúi Íþróttabandalags Reykjavíkur. Hún segir leiðinlegt að Kristinn hafi ekki getað safnað styrkjum um helgina.Flestir sem söfnuðu áheitum hafi skráð sig rafrænt til leiks en svo hafi einhverjir gert það í persónu í Laugardalshöll. Upplýsingar þeirra eru því skráðar í framhaldinu inn á vefinn en í tilfelli Kristins hafi greinilega verið gerð innsláttarvilla. Hann sé ekki sá eini sem hafi lent í því.
Um helgina hafi mannskapurinn verið á fullu að starfa við sjálft hlaupið á laugardeginum.
„Í gær voru allir búnir á því,“ segir Anna Lilja.
Alls engin þöggun
Anna Lilja hefur beðið Kristinn velvirðingar á mistökunum á Facebook-síðu hans og um leið bent honum á að áheitasíðan hans sé orðin virk. Síðan sé opin til miðnættis og því enn hægt að safna áheitum.„Hann er kominn með fyrsta áheitið,“ segir Anna Lilja en Ásgeir nokkur Örn hefur styrkt Kristinn um tvö þúsund krónur.
Hún þvertekur fyrir að um þöggun sé að ræða.
„Það á ekki við rök að styðjast. Svona getur alltaf komið fyrir þegar skráningar eru gerðar handvirkt á síðustu stundu. Það er bara leiðinlegt að við tókum ekki eftir þessu fyrr.“