Harpa elskar að brasa og stússast og þegar Makamál náðu tali af henni var hún í þann mund að klára að mála íbúðina sína þar sem gulur litur ræður ríkjum.
Makamál fengu að heyra hver 10 Bone-orð Hörpu eru. Hvaða eignleikar eru það sem henni finnast heillandi og óheillandi í fari manneskju?

1. Húmor. Grín er ómissandi. Fólk sem gerir grín að sjálfu sér, bullar, býr til grín, skilur þegar aðrir eru að grínast, notar kaldhæðni, ýkir svolítið og daðrar við mörkin en fer ekki yfir þau fær fullt hús stiga.
2. Þegar fólk er búið að taka aðeins til í sínum eigin skúffum og er sátt í sér, stendur með sjálfum sér og er sama hvað öðrum finnst. Þá flýtur allt þetta góða með. Sjálfsöryggið, metnaðurinn, heiðarleikinn, ljóminn og velgengnin!
3. Ástríða. Þegar fólk hefur ástríðu fyrir einhverju, hlustar á hana og eltir drauma sína.
4. Tilfinningagreind. Að geta greint sínar eigin tilfinningar og tilfinningar annarra. Þá er hægt að tengjast annari manneskju. Að geta deilt, hlustað, gefið og þáð, sýnt auðmýkt og einlægni. Það finnst mér vera mikil dyggð.
5. Smáatriðin. Það eru oft smáatriðin hverju sinni sem skipta mestu máli, en ef til vill erfitt að lýsa því hvað það er. Gæti verið bros, skökk tönn, fæðingarblettur, ákveðinn hljómur í rödd eða hlátri, frekjuskarð, lykt, kækur, göngulag eða augnaráð. Oftast er það samt þetta ósýnilega.
OFF:
1. Sjálfsvorkunn. Að dvelja í neikvæðni, reiði og biturð og setja sig í hlutverk fórnarlambs er mikill löstur og afar óheillandi.
2. Afbrýðisemi. Það er auðvitað ekkert annað en óöryggi. Algjört eitur og ég hef enga þolinmæði fyrir henni.
3. Níska. Þarf ekki að fara nánar út í það, alveg til að drepa stemninguna.
4. Leti. Í alvöru!
Versti texti í jólalagi eða jafnvel bara lagi yfir höfuð er Ef ég nenni með Helga Bjöss. Ég hugsa alltaf þegar ég heyri þetta lag:
Hversu slöpp týpa ertu ef þú ert það latur að þú nennir ekki einu sinni að senda ástinni þinni jólakort? Ekki það að Helgi Bjöss sé slöpp týpa. Ég meina eru ekki allir sexý? Mér finnst rigning góð og allt það!5. Fólk sem er alltaf að tala um hvað það sé þreytt. Í guðana bænum talaðu ekki um þetta við nokkra manneskju, farðu og leggðu þig eða eitthvað. Kemur mér ekki við.
