Íhugaði málsókn í fyrra en er nú metinn hæfasti dómarinn

Jónas sótti um stöðu héraðsdómara árið 2017. Guðlaugur Þór Þórðarson, settur dómsmálaráðherra, skipaði þá átta héraðsdómara í samræmi við tillögur dómnefndar sem lagði mat á hæfi umsækjenda.
Guðlaugur Þór taldi vankanta á mati nefndarinnar en taldi sökum tímaskorts ekki annað í stöðunni en að fara að tillögum nefndarinnar.
Fyrrnefndur Jónas sótti um og hafði á ferilskránni tveggja áratuga reynslu sem héraðsdómari. Hann rataði hins vegar ekki á lista efstu átta af þeim 41 sem sóttu um. Hann var þó ekki metinn hæfastur í þeim þætti sem laut að dómarareynslu.
„Ég hef ráðið mér lögmann og er að fara yfir stöðuna með tilliti til málshöfðunar. Ég tel að nefndin hafi gert á minn hlut og að miski minn sé mikill,“ sagði Jónas við það tilefni.
Það var ekki í fyrsta skipti sem hæfisnefnd gekk fram hjá Jónasi, en við skipun í Héraðsdóm Reykjavíkur ári fyrr var hann ekki talinn meðal átta hæfustu umsækjenda, þrátt fyrir að hafa mesta dómarareynslu hópsins.
Staðan, sem Jónas er nú metinn hæfastur til að gegna, var auglýst þann 3. maí og voru umsækjendur um embættið fjórtán.
Auður Björg Jónsdóttir lögmaður
Ásgeir Jónsson lögmaður
Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður dómara
Guðmundína Ragnarsdóttir lögmaður
Halldóra Þorsteinsdóttir lektor
Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómara
Ingi Tryggvason lögmaður
Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður
Jónas Jóhannsson lögmaður
Magnús Björn Brynjólfsson lögmaður
Margrét Gunnlaugsdóttir lögmaður
Ólafur Helgi Árnason lögmaður
Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður dómara
Þórhallur Haukur Þorvaldsson lögmaður
Tengdar fréttir

Setja út á ósamræmi í mati dómaranefndar
Hluti umsækjenda um lausar stöður við héraðsdómstóla landsins segir að sums staðar í mati hæfnisnefndar virðist sem hífa hafi átt umsækjendur upp á kostnað annarra. Unnið er af kappi að málinu í ráðuneyti setts dómsmálaráðherra.

Íhugar málsókn vegna skipan héraðsdómara
Átta héraðsdómarar voru skipaðir í gær. Tímahrak og einstrengingsleg afstaða dómnefndar þýddi að settur dómsmálaráðherra féllst á tillögur matsnefndar um hæfi dómara.

Hæstaréttarlögmaður gáttaður á vinnubrögðum dómnefndar
Athygli vakti að einn umsækjenda, hæstaréttarlögmaðurinn Jónas Jóhannsson, var ekki talinn meðal þeirra átta hæfustu – þrátt fyrir að hafa að baki um 20 ára reynslu sem héraðsdómari víða um land.

Kvartar til umboðsmanns og óskar rökstuðnings ráðherra
Hæstaréttarlögmaður og fyrrum héraðsdómari með um 20 ára dómarareynslu hefur óskað eftir rökstuðningi frá dómsmálaráðherra vegna nýlegrar skipunar í Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann hefur einnig sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna vinnubragða sérstakrar hæfisnefndar, sem hann telur ómálefnaleg.