Salvör ritar pistil sem hún birtir á Facebooksíðu sinni og lýsir þar yfir verulegri óánægju með nýja auglýsingaherferð frettabladid.is. Salvör Kristjana er sérfræðingur á þessu sviði en hún gegndi lengi vel stöðu lektors í upplýsingatækni og tölvunotkun við Kennaraháskóla Íslands. Hún telur herferðina gegnsýrða fordómum.
„Forsíða Fréttablaðsins í dag er liður í auglýsingaherferð sem einnig er sjónvarpsauglýsingar sem hafa verið í spilun undanfarna daga. Í sjónvarpsauglýsingunni er eldri kona sem sér eitthvað sniðugt og áhugavert á netinu og ætlar að sýna manni sínum en rekst þá í takka þannig að mynd af henni sjálfri birtist á skjánum. Og þá kemur boðskapurinn - boðskapur að þó þú kunnir ekkert á tæknina og samfélagsmiðla þá sé þarna úti fólk sem getur komið með þekkinguna til þín.“
Að gera lítið úr miðaldra konum
Salvör Kristjana segir hægan leik að lesa úr þessu og sú mynd sem hún dregur upp er ekki fögur:„Þessi auglýsing talar alveg inn í samtímann og staðalmyndirnar og á hverja er skotleyfi og að hverjum má hæðast að og gera lítið úr. Það má gera lítið úr miðaldra konum og tæknikunnáttu þeirra og hamra á þeirri skrýtnu hugmynd að það sé eitthvað samband milli aldurs og kyns og þess að það geta notað spjaldtölvu sér til gagns.“

Hópur, „sem helgar sig því að gera gys að eldra fólki og því sem það telur vera hlægilegan lífstíl þess, hópurinn heitir „hópurinn sem allir eru miðaldra“ eða eitthvað í þá áttina. Það getur verið að þeir sem hönnuðu þessa auglýsingu hafi sótt þar innblástur.“
Í auglýsingunum er gert góðlátlegt grín að öllum
Pistill Salvarar, sem hún birti fyrir stundu, hefur þegar vakið verulega athygli. Ýmsar konur leggja orð í belg í athugasemdum og telja engan vafa á leika að þetta sé afskaplega fordómafull auglýsing.Ólöf bendir á að auglýsingarnar séu reyndar sex talsins og þar sé gert grín að ungum sem öldnum, konum og körlum.
„Það er ekki nóg með að internetið og samfélagsmiðlar flækist fyrir alls konar fólki á öllum aldri á hátæknitímum, sem auglýsingaherferðin gerir góðlátlegt grín að, heldur hefur fólk ríka tilhneigingu til þess að oftúlka eða lesa í flest sem fyrir augu þess ber án þess að horfa á heildarmyndina,“ segir Ólöf í samtali við Vísi. Og bætir við:
„Ég held að svo sé í þessu tilfelli og mæli með að fólk fylgist áfram með og horfi á auglýsingaherferðina til enda.“