Skaftholt verður með opinn dag eftir hádegi í dag, 21. september frá 14:00 til 17:00 þar sem gestum og gangandi er boðið að koma og kynnast starfseminni. Á bænum er þjónusta fyrir fatlaða þar sem átta búa í vernduðu umhverfi. Allir hafa vinnu og nóg fyrir stafni allt árið um kring. Gunnþór Guðfinnsson er garðyrkjumaður staðarins.
„Það sem snertir vinnuna er mest í tengslum við garðyrkju og landbúnað, auk þess erum við með vinnustofur samanber smíðastofuna Drumbinn“, segir Gunnþór Guðfinnsson, sem sér um garðyrkjuna á staðnum.
Drumbinn verður opinn í dag þar sem afrakstur vinnu sumarsins verður til sýnis. Þá verður hægt að gera góð kaup á lífrænt ræktuðu grænmeti.
„Við ræktum allt mögulegt, það er úrval af þessu helsta grænmeti, sem ræktað er á landinu. En fyrst og síðast ræktum við fyrir heimilið en það sem við erum aflögufær með hverju sinni bjóðum við öðrum að njóta líka og kaupa. Í ár erum við með eitthvað aflögu af rófum, rauðrófum, grænkáli, blaðlauk, steinselju og smá sellerí svo eitthvað sé nefnt“, segir Gunnþór.

„Lífrænt ræktun er framtíðin eins og við horfum á það. Það er í rauninni sú leið, sem við teljum vera færust fyrir jörðina til að bera fæðuframboðið af þeim gæðum sem við viljum meina að þurfi. Við erum þannig að rækta jarðveginn fremur en plönturnar og leggjum okkur fram um að næra jarðveginn og lífríkið í jarðveginum og eftir því sem það tekst betur og betur vaxa plönturnar betur“, bætir Gunnþór við.
Í Skaftholti eru líka 18 mjólkurkýr en mjólkin frá þeim er notuð til að búa til osta, skyr og jógúrt.
En hvar er Skaftholt fyrir þá sem vita ekki hvar staðurinn er og vilja koma á opna daginn í dag?
„Skaftholt er í Skeiða og Gnúpverjahreppi og er um þrjá kílómetra ofan við Árnes ef fólk kannast við það á leiðinni í Þjórsárdal“, segir Gunnþór um leið og hann bíður alla áhugasama velkoma á opna daginn í dag.