Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, fundaði með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á fimmtudag til að ræða persónuverndarmál, hlutdrægni og fyrirhugaða rafmynt tæknirisans. Hefur Trump og ríkisstjórn hans haft áhyggjur af þróun Facebook hvað þessi mál varðar.
Talsmaður Facbebook sagði fundinn hafa verið „uppbyggilegan“ en hann var einn af mörgum sem Zuckerberg sótti með þingmönnum þennan dag. Hafa margir þingmenn haft áhyggjur af yfirburðastöðu Facebook á markaðinum, til dæmis öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley, sem spurði Zuckerberg hvort það kæmi til greina að selja samfélagsmiðlana Instagram og Whatsapp.
Trump sjálfur hafði mestar áhyggjur af hlutdrægni samfélagsmiðilsins gegn hægriskoðunum en nýlega ákvað Zuckerberg að taka hart á hatursorðræðu og bannaði nokkra háværa öfgahægrimenn.
Í vor tilkynnti Zuckerberg að ný rafmynt væri væntanleg á markað en hún á að heita Libra. Prófanir myndu hefjast í lok árs og myntin yrði sett á markað snemma árið 2020. Ekki eru allir sáttir við þessar áætlanir, til að mynda Ravi Menon, seðlabankastjóri Singapúr, sem segir að myntin myndi raska hinu alþjóðlega fjármálakerfi og að ríkisstjórnir heimsins verði að koma sér saman um viðbrögð. „Áhættan nær til alls heimsins. Enginn einn löggjafi getur tekist á við þetta,“ sagði Menon. Bruno Le Maire, fjármálaráðherra Frakklands, hefur einnig varað við myntinni.
Viðruðu áhyggjur af málefnum Facebook
Kristinn Haukur Guðnason skrifar

Mest lesið

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent


„Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“
Viðskipti innlent


Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju
Viðskipti innlent

VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi
Viðskipti innlent


Jón Guðni tekur við formennsku
Viðskipti innlent

Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti
Viðskipti innlent

Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera
Viðskipti erlent