Sigurhæðir, hús Matthíasar Jochumssonar, stendur í brekkunni skammt frá Akureyrarkirkju og er afar áberandi í bæjarmyndinni. Morgunblaðið greindi fyrst frá þessu.
Guðmundur segir að áform um sölu á húsinu sé liður í því að skoða hvernig bærinn geti dregið úr kostnaði. Þannig hafa bæjaryfirvöld að undanförnu gaumgæft eignir bæjarins og skoðað hvaða eignir hafi nýst illa. Hús Matthíasar sé ein þeirra eigna sem hafi nýst illa vegna aðgengismála.
„Það er kostnaðarsamt að koma upp aðgengi að þessu og við höfum talað um það að það væri kannski möguleiki á því að losa okkur undan þessu með því að selja húsið og kannski eru þarna aðilar úti sem gætu nýtt ser húsið og væru tilbúnir til þess.“

„Auðvitað er það þannig að fólk hefur taugar til þessa húss. Það er eðlilegt og þetta mun skapa einhverja umræðu, þetta var tekið fyrir í stjórn Akureyrarstofu í síðustu viku og kemur fyrir bæjarráð í næstu viku þar sem bæjarráð mun afgreiða þetta mál en það er vilji okkar til þess að leita að nýjum eigendum að þessu húsi.“
Þetta er stolt Norðausturlands, er ekki óhætt að segja það?
„Þetta er fallegt hús og sögufrægt hús og það er hús sem kemur til með að standa þarna um ókomna framtíð en vonandi finnst einhver sem vill eiga þetta og vill halda þessu við. Við höfum líka áhyggjur af því að með lítilli notkun, eins og þetta hefur verið síðustu árin, að þá drabbist þetta niður,“ segir Guðmundur.
