Lögregla á Suðurnesjum hafði afskipti af erlendum ökumanni sem staðinn var að því að flytja farþega gegn gjaldi án þar til gerðra réttinda.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn reyndist ekki hafa ökuréttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Þar að auki var hann ekki með skráð dvalarleyfi hér á landi.
„Maðurinn var að aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar með farþega í bifreiðinni þegar lögregla stöðvaði hann. Þegar hann gat ekki framvísað tilskyldum leyfispappírum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla.
Þetta er í annað sinn á árinu sem þessi sami maður er staðinn að slíkum verknaði því í febrúar sl. hafði lögregla afskipti af honum vegna svipaðs máls. Þá var hann í akstri með þrjá farþega sem voru nýkomnir úr flugi. Hann hefur með þessu gerst tvívegis brotlegur við lög um útlendinga og lög um akstur með farþega í atvinnuskyni,“ segir í tilkynningunni.
Ók farþega gegn gjaldi án réttinda
Atli Ísleifsson skrifar

Mest lesið






Af Alþingi til Fjallabyggðar
Innlent


Jónas Ingimundarson er látinn
Innlent


Steindór Andersen er látinn
Innlent