Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að veita fjögurra milljóna króna styrk af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar til alþjóðlegrar skákhátíðar og skákmóts á Selfoss sem fram fer dagana 19.- 29. nóvember næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisstjórninni.
Aðalviðburður hátíðarinnar verður skákmót tíu heimsmeistara en allir þátttakendur hafa orðið heimsmeistarar í skák í einhverjum flokki.
Þá verður einnig haldið barna- og unglingaskákmót, Fischer-slembiskákmót, raðskákmót og fjöltefli, auk málþings um stöðu skákíþróttarinnar á Íslandi.
Á Selfossi er starfrækt Fischersetur en markmið þess er að halda á lofti minningu skákmeistarans Bobby Fischer sem tengdist Íslandi miklum vináttuböndum eftir einvígi sitt við Boris Spassky í Reykjavík árið 1972.