Mál fjórmenninganna verður ekki tekið fyrir á þingi SGS

Morgunblaðið greindi frá því í blaði dagsins að fjórir starfsmenn á skrifstofu Eflingar, sem hafa verið reknir eða eru í veikindaleyfi, hefðu sent skriflegt erindi til stjórnenda Starfsgreinasambands Íslands og óskað eftir því að málið yrði tekið fyrir á sjöunda þingi Starfsgreinasambandsins sem var sett á Hótel Reykjavík Natura í dag. Málið varðar þau Önnu Lisu Terrazas, Elínu Hönnu Kjartansdóttur, Kristjönu Valgeirsdóttur og Þráinn Hallgrímsson sem saka forystu Eflingar stéttarfélags um eineltistilburði.
Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands, segir málið ekki eiga heima á þinginu.
„Þetta erindi var sent nokkrum framkvæmdastjórnarmönnum og mér. Þetta er ekki með neinum hætti þingerindi eða þinglegt mál. Til þess að leggja mál hér fyrir þingið okkar þá þarf að gera það með ákveðnum fyrirvara. Starfsgreinasambandið hlutast ekkert til um einstök mál aðildarfélaga sinna og ég á ekki von á því að þetta verði tekið fyrir hér. Enda erum við að fjalla um stóra hluti; kjarasamningana og kjaramálin í landinu,“ segir Flosi.
Það sé ekki til siðs að Starfsgreinasambandið hlutist til um innri málefni verkalýðsfélaganna.
„Nei og engar heimildir til þess og enda eru þetta sjálfstæð lýðræðisleg félög sem hafa sínum málum eins og þau telja hvað best.“
Þess ber að geta að forysta Eflingar hafnar með öllu ásökunum fjórmenninganna. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir auk þess að ekkert nýtt sé í málinu.
Tengdar fréttir

Segir skrif fyrrverandi skrifstofustjóra Eflingar í Morgunblaðið vekja furðu
Þráinn Hallgrímsson, fyrrverandi skrifstofustjóri verkalýðsfélagsins Eflingar, vandar forystumönnum félagsins ekki kveðjurnar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Efling segir engan fót fyrir ásökun fjármálastjórans
Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingu fjármálastjóra félagsins um vinnubrögð forystu Eflingar eru sagðar ósannar. Fullyrðingar hennar komu fram í yfirlýsingu sem var send til fjölmiðla í gær.

Forseti Alþýðusambandsins telur Eflingu virða kjarasamninga í starfsmannadeilu
Forseti Alþýðusambands Íslands segir sambandið telja að Efling hafi ekki brotið gegn kjarasamningi í starfsmannadeilu sinni. Hæstaréttarlögmaður tveggja kvenna sem hafa verið í veikindaleyfi í ár segir þær fara fram á að fá fjárhagstjón sitt bætt. Sökum aldurs sé ólíklegt að þær fái aðra vinnu, þær eigi þrjú til fjögur ár til eftirlaunaaldurs. Efling hafi ekki sýnt neinn sáttavilja í starfsmannamálunum.