Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður konunnar, segir þetta einfaldlega rangt, skjólstæðingur hennar hafi aldrei verið beðin um að afhenda lykilinn. Hér er því orð gegn orði.
Í bréfi sem Vísir hefur undir höndum og Viðar sendi til ýmissa sem að Eflingu standa og dagsett er 16. maí á þessu ári rekur Viðar málin eins og þau horfa við sér vegna krafna frá Þráni Hallgrímssyni, Kristjönu Valgeirsdóttur og Elínu Hönnu Kjartansdóttur með milligöngu Láru Júlíusdóttur lögmanns á hendur Eflingu.
„Þráinn, Kristjana og Elín eiga það sameiginlegt að hafa gegnt störfum á skrifstofum Eflingar, þar af tveir í háttsettum stjórnendastöðum (Þráinn skrifstofustjóri og Kristjana fjármálastjóri). Í erindum þeirra eru sakir bornar á formann og stjórnendur Eflingar og fullyrt að félagið hafi brotið á þeim. Þessu er hafnað alfarið,“ segir í bréfinu.
Neitað að afhenda lykilinn
Þar fer Viðar ítarlega yfir mál sem höfðu og hafa verið talsvert til umfjöllunar í fjölmiðlum en ný stjórn Eflingar hefur meðal annars mátt sitja undir ásökunum um að virða ekki vinnurétt.Í bréfinu fjallar Viðar meðal annars fjallað skilmerkilega um átök við Kristjönu. Þar segir meðal annars af því að hún hafi neitað að afhenda lykil að peningaskáp sem á skrifstofu hennar var/er.

Um 55 milljónir króna í starfslokagreiðslu
Í bréfi Viðars frá í maí er farið yfir þennan hluta málsins auk þess sem greint er frá kröfum Kristjönu um starfslokasamning. Viðar telur að meta megi samninginn sem kostnað fyrir Eflingu upp á um 55 milljónir króna eða sem nemur launum og launatengdum gjöldum í fjögur ár.„Þeirri kröfu var hafnað enda úr tengslum við allt velsæmi. Á næstu vikum og mánuðum hófst mikil orrahríð í fjölmiðlum þar sem Kristjana bar félagið margvíslegum þungum sökum. Kristjana hefur verið veik síðan og lagt fram vottorð læknis því til staðfestingar.

Ítrekað gengið eftir lyklunum í bréfaskiptum
Í bréfinu er því lýst að félagið hafi þurft að standa í ítrekuðum bréfaskiptum við lögmann hennar, Láru V. Júlíusdóttur, til þess að fá aðgang að gögnum félagsins í peningaskáp sem staðsettur var á skrifstofu Kristjönu.„Beiðnum félagsins í því sambandi var svarað á þann veg í bréfi dags. 30. nóvember 2018 að „eðlilegast væri að slíkt verði gert í tengslum við frágang starfslokasamnings.“ Telur félagið að þessi framganga Kristjönu sýni ekki trúnað gagnvart hagsmunum félagsins og var Kristjana innt svars við því hvort félagið ætti að líta á þessa framkomu sem uppsögn, en hún hefur með yfirlýsingum bæði í gegnum lögmann sinn og í fjölmiðlum gefið til kynna að hún sækist ekki eftir áframhaldandi störfum hjá félaginu.“
Lára segir lyklana ætíð hafa verið tiltæka
Vísir bar þetta undir Láru og spurði hana einfaldlega hvort þetta sem Viðar lýsir sé ekki óeðlileg þvingun en Lára vísar þessu alfarið á bug. Hún segir að umbjóðandi hennar hafi ítrekað óskað eftir því að fá skilja við störf sín hjá Eflingu þannig að skýr skil yrðu á milli hennar starfa og annarra sem á eftir kæmu.
Þá segir lögmaðurinn að Elín hafi aldrei verið spurð um lyklana heldur gengið út frá því að ætlun Kristjönu hefði verið einhver önnur en að framan er lýst.
Aldrei haft samband til að athuga með líðan Kristjönu
„Umbjóðandi mínum var mjög brugðið þegar hún var ásökuð um að hafa ekki viljað afhenda umrædda lykla. Þessar föstu starfsvenjur voru öllum kunnar á skrifstofu Eflingar sem tengdust fjármálum og bókhaldi, þar á meðal skrifstofustjóra, formanni, bókara og starfsmanni endurskoðanda. Þessar upplýsingar áttu þeim að vera kunnar.“Þá segir Lára jafnframt að allt frá því að umbjóðandi hennar fór í veikindaleyfi þá hafi enginn stjórnenda Eflingar haft samband við hana til að athuga með líðan hennar eða sýnt henni umhyggju.
„Það eitt er óneitanlega sérstök framkoma af hálfu atvinnurekanda gagnvart starfsmanni sínum til áratuga, hvað þá stjórnendum stéttarfélags sem telur sig í fararbroddi fyrir velferð launafólks.“