Stöllurnar endurléku fræga senu úr þáttunum Friends en Witherspoon fór með hlutverk Jill Green, systur Rachel Green, sem Aniston lék á sínum tíma.
Í senunni frægu ræða þær systur Ross Geller og verður samtalið spennuþrungið þegar Rachel segir Jill að hún megi ekki „fá“ Ross. Þá svarar Jill „Get ekki fengið?! Það eina sem ég get ekki fengið eru mjólkurvörur!“ og stormar út.
One of the best parts of working with Jen is reliving my favorite lines from #FRIENDS! #theGreenSistersView this post on Instagram
A post shared by Reese Witherspoon (@reesewitherspoon) on Oct 18, 2019 at 8:54am PDT
The Morning Show verða sýndir á nýrri streymisveitu Apple, Apple TV+, og mun fyrsti þátturinn birtast 1. nóvember. Með aðalhlutverk í þáttunum fer einnig Steve Carell.
Hægt er að horfa á upprunalegu senuna í spilaranum hér að neðan. Hún hefst á mínútu 7:00.