Rútan var á vegum European Coach Services en hópbílafólk á Íslandi hefur verið afar gagnrýnið í garð fyrirtækisins undanfarin misseri. Hefur fyrirtækinu verið lýst sem sjóræningjum þar sem rútubílstjórar fái verulega lág laun.

Eigandi Snæland Travel telur að öll stóru íslensku fyrirtækin stoppi bíla sína þegar veðurspár eru í líkingu við það sem var í morgun.
„Þá erum við hættir að keyra!“
Snarvitlaust veður
23 farþegar voru um borð í rútunni sem fór út af þjóðveginum við Hafurshól undir Eyjafjöllum upp úr klukkan átta í morgun. Voru farþegar selfluttir með björgunarsveitarbílum af Suðurlandi í fjöldahjálpastöð sem Rauði krossinn opnaði í Heimalandi.Var veðrinu á svæðinu lýst sem snarvitlausu með vindhraða upp í 40 m/s í mestu hviðum. Gul viðvörun var í gildi frá Veðurstofu Íslands.

„Þetta fór að minnsta kosti á besta mögulega veg, því hún fór nú þarna út í þessa á og það lukkaðist greinilega mjög vel. Það voru allir rólegir um borð og, eins og ég segi, menn náðu að halda ró sinni. Það varð því engin geðshræring þannig að þetta var allt unnið í rólegheitum og af yfirvegun að koma fólkinu þarna í burtu,“ segir Davíð Már.
Engin hálka á veginum
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir ástæðuna fyrir því að rútan hafnaði í ánni einfalda. Rútan hafi lent í vindhviðu sem ýtti henni útaf veginum.Rútan hafi verið dregin upp úr ánni og var komin að Heimalandi síðast þegar fréttist.

Hvorki bílstjóri né farþegi slösuðust en tveir sjúkraflutningamenn fuku um koll og lentu á brúarhandriði.
Sveinn Kristján sagði ljóst að þeir myndu ná sér en hefðu hlotið skurð og hrufl.
Staðfesta málamyndalaunagreiðslur
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir SAF, félag hópbifreiðaleyfishafa og Samtök atvinnulífsins margoft og ítrekað hafa bent á ýmis vandkvæði sem tengjast hópbifreiðarekstri erlendra fyrirtækja á Íslandi, sem allt of oft stunda gróf félagsleg undirboð, skila ekki lögbundnum sköttum og skyldum, fara á svig við reglur um útsenda starfsmenn og sýna slaka gagnvart öryggi farþega.Starfsmenn fyrirtækja sem stunda slík brot hafi jafnvel staðfest við íslenska bílstjóra að málamyndalaunagreiðslur séu framkvæmdar til að villa um fyrir íslenskum eftirlitsstofnunum.
Haraldur Teitsson, formaður Félags hópferðaleyfishafa, sagði við fréttastofu fyrr á árinu að European Coach Services greiddi bílstjórum sínum um fimm þúsund krónur á dag.
„Ekki á tímann, heldur á dag fyrir tíu til tólf tíma vinnu,“ sagði Haraldur.
Fréttina má sjá hér að neðan.
Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um slíka starfsemi og beinar tillögur til úrbóta hafi lítið sem ekkert þokast í átt til þess að tekið sé á vandamálinu af hálfu stjórnkerfisins, reglum sé breytt eða eftirlit eflt og heimildir þess styrktar.
Öll stóru fyrirtækin hætti að keyra í svona veðri
Hlynur Snæland Lárusson, eigandi Snæland Travel, segir fyrirtækið hafa stöðvað bílana sem fyrirtækið hafði í akstri á svæðinu í morgun.„Öll þessi íslensku fyrirtæki vinna svipað, þessi sem eru með flota. Ef hviður eru komnar upp fyrir 30 m/s þá stoppum við bíla nema það sé einhver sérstök vindátt,“ segir Hlynur.
„Þá erum við hættir að keyra.“

Vísar hann til þess að Benny Engelbrech samgönguráðherra í Danmörku brást á dögunum við þeirri staðreynd að erlend rútufyrirtæki væru án takmarkana í Danmörku. Þar hefur umferð erlendra rútufyrirtækja verið takmörkuð við eina viku í mánuði. Eftir það verða rúturnar að yfirgefa landið.
Þarf að ryðja hindrunum úr vegi
Þrátt fyrir gagnrýnina vill Jóhannes Þór taka fram að Samtök ferðaþjónustunnar hafi átt mjög góð og jákvæð samskipti við stofnanir og eftirlitsaðila sem þurfa að koma að málinu. Nefnir Jóhannes sérstaklega að samtökin hafi séð og fundið fyrir miklum og góðum vilja hjá Vinnumálastofunun, Ríkisskattstjóra og lögreglunni til að taka fastar á þessum málum.„Því miður virðast þó enn vera hindranir til staðar sem flækja starfið fyrir þessum stofnunum og gera þeim jafnvel illgerlegt að taka á málinu. Sé það staðan þarf að ganga strax í að ryðja þeim hindrunum úr vegi. Ef þarf að breyta lögum eða reglum þá þarf að gera það strax.“

Vísar Jóhannes til skýrslu skýrslu sem SAF tók saman um tillögur til skilvirkara eftirlits með ólöglegri starfsemi í ferðaþjónustu sem birt var í mars síðastliðnum.

„Þessi staða hefur nú um langt skeið gert samkeppnisumhverfi íslenskra hópbifreiðafyrirtækja algerlega ótækt og staðan versnar frá ári til árs. Aðgerða er þörf.“