Tekið er við tilnefningum hér á Vísi en frestur til að tilnefna rennur út föstudaginn 13. desember. Ritstjórn Vísis og Reykjavík Síðdegis fara sameiginlega yfir innsendar tilnefningar og í kjölfarið hefst atkvæðagreiðsla. Einstaklingurinn verður heiðraður í árlegum áramótaþætti Reykjavík árdegis á gamlársdag.
Í tilnefningunni þarf nafn viðkomandi að koma fram auk upplýsinga um hvers vegna viðkomandi á skilið að vera útnefndur sem Maður ársins 2019. Farið verður yfir tilnefningar með tilliti til rökstuðnings og fjölda tilnefninga sem hver og einn fær. Atkvæðagreiðsla fer svo fram á Vísi yfir jólin.
Bára Halldórsdóttir fötlunaraktívisti var valin maður ársins í fyrra í kjölfar birtingar á Klaustursupptökunum. Hér má sjá þau tíu sem tilnefnd voru sem maður ársins í fyrra en þá rigndi tilnefningum inn frá lesendum.
Tilnefndu þína konu, karl eða hóp hér að neðan.