Innbrotsþjófar á hlaupum í miðbænum Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. desember 2019 07:30 Báðir þjófarnir hlupu á brott. Vísir/vilhelm
Innbrotsþjófur, sem braust inn í heimili í miðbæ Reykjavíkur á sjöunda tímanum í gær, tók á rás út úr húsinu þegar hann varð var við íbúa. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi náð að taka einhverja muni með sér en að ekki sé vitað hverju var stolið. Þá kom starfsmaður fyrirtækis í miðbænum að manni inni á skrifstofu fyrirtækisins, þar sem hann var í þann mund að stela fartölvu sem þar var. Þjófurinn náði að hlaupa út án tölvunnar. Seint í nótt var tilkynnt um innbrot í „tónlistarhús í hverfi 101“, líkt og það er orðað í dagbók lögreglu. Öryggisverðir höfðu þar orðið varir við manneskju á ferli. Um var að ræða heimilislausa konu sem sofnað hafði inni í húsinu og var komin á stjá. Í dagbók lögreglu segir að konan hafi sagst hafa farið inn í húsið í gærkvöldi en síðan sofnað. Þá hafi hún ætlað að koma sér út er lögregla kom á vettvang. Þá var starfsmaður póstþjónustu að fara með sendingu í hús í Mosfellsbæ þegar hundur réðst að honum og beit hann. Maðurinn ætlaði að leita sér aðstoðar á slysadeild.
Lögreglumál Mosfellsbær Reykjavík Mest lesið „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Innlent Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Erlent Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Erlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Háholt sett aftur á sölu Innlent Svona gæti veðrið litið út á sumardeginum fyrsta Veður Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Erlent Fleiri fréttir Ekki vika liðin frá grjóthruninu þegar annar bíll sveitarstjórans stórskemmdist „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Háholt sett aftur á sölu Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki Ráðherra bregst við athugasemdum, leikur ársins og ódýrt grænmeti „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi Sjá meira