Tólfti desember er runninn upp og því tólf dagar til jóla. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.
Vísir ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safni sínu á hverjum degi.
Í dag býður Vísir upp á flutning Ladda á laginu Snjókorn falla. Hjörtur Howser spilar á píanó. Lagið var tekið upp fyrir Jólalistann á Stöð 2 í desember 2011. Þetta var í fyrsta skipti sem Laddi tók lagið upp síðan árið 1986 þegar hann söng það á plötunni Jól alla daga.
Jólalag dagsins: Laddi með sögulegan flutning á Snjókorn falla
