Þingmenn hófu síðdegis aðra umræðu um bandormsfrumvarp ríkisstjórnarinnar vegna síðustu efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar. Síðar í kvöld á að ræða umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum.

Þingfundur hófst með umræðum um störf þingsins klukkan þrjú í dag. Í þeim undraðist stjórnarþingmaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé málflutning þingmanna Miðflokksins í umræðum um loftslagsmál og borgarlínu á Alþingi í vikunni. Þar vissi flokkurinn alltaf betur en allir aðrir.
„Og ég velti því fyrir mér margoft undir þessum umræðum; undan hvaða steini Miðflokkurinn skreið.“
„Gögn, líkön, staðreyndir. Þetta skiptir Miðflokkinn engu máli,“ sagði Kolbeinn.

Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Miðflokksins lét þessi ummæli ekki slá sig út af laginu.
„Ég vil nú byrja á því að þakka háttvirtum þingmanni Kolbeinni Óttarssyni Proppé fyrir að vekja athygli á sérstöðu Miðflokksins þegar kemur að þeim málum sem hér voru rædd í gær. Og ég tek undir hvatningu hans til landsmanna til að kynna sér innihald þeirrar umræðu,“ sagði Þorsteinn.
Fundurinn fór annars framan af í atkvæðagreiðslur um nokkur mál. Þær fara fram með sérkennilegum hætti þessa dagana á Alþingi vegna sóttvarna. Meðal annars voru greidd atkvæði um lengingu þingfundar í kvöld þar sem þingforseti freistar þess meðal annars að ljúka fyrstu umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata sagði flokkinn til í að funda lengi um aðgerðir vegna kórónufaraldursins, eins og bandormsfrumvarp ríkisstjórnarinnar vegna síðustu aðgerða hennar sem umræða hófst um rétt um klukkan fimm.
„Við lögðum hins vegar ekki blessun okkar yfir það að vinna hér fram á kvöld í því að koma á enn ómannúðlegri Útlendingastofnun og útlendingastefnu en nú þegar er í gildi á Íslandi. Þar af leiðandi segjum við nei við lengdum þingfundi og nei við þessu óbermis frumvarpi,“ sagði Þórhildur Sunna.