Microsoft hélt í dag kynningu á nýjum tölvuleikjum fyrir nýja leikjatölvu fyrirtækisins, Xbox Series X. Þar voru stiklur fyrir fjölmarga leiki sýndar en sá sem fylgst var hvað mest með var Assassins Creed Valhalla. Sú stikla sýndi þó oggulítið frá leiknum sjálfum.
Með þessu vildu forsvarsmenn Xbox Series X sýna hvernig tölvuleikir munu líta út í leikjatölvunni.
Microsoft sýndi þó enga af þeim leikjum sem fyrirtækið sjálft, eða dótturfyrirtæki, eru að framleiða fyrir tölvuna. Þeir verða sýndir í júlí og er þar að ræða um leiki eins og Halo Infinite og Senua's Saga: Hellblade 2.
Hér að neðan má sjá stiklurnar sem voru sýndar.