Ísraeli ákærður fyrir njósnir á vegum Íran Samúel Karl Ólason skrifar 8. apríl 2020 11:05 Ísrael og Íran hafa verið erkifjendur í áratugi. AP/Vahid Salemi
Ísraelskur maður hefur verið ákærður fyrir njósnir á vegum Íran og að undirbúa hryðjuverkaárásir. Maðurinn var handtekinn í síðasta mánuði og hafði hann verið í samskiptum við útsendara leyniþjónustu Íran. Öryggisstofnunin Shin Bet segir manninn hafa verið beðinn um að gera hryðjuverkaárásir í Ísrael, útvega upplýsingar um varnir landsins og möguleg skotmörk. Hann var einnig beðinn um hugmyndir til að valda deilum og átökum í Ísrael og að finna ísraelska araba sem væru einnig tilbúnir til að vinna á vegum Íran. Þegar hann var handtekinn á maðurinn að hafa reynt að eyðileggja USB-drif og var hann sömuleiðis með dulkóðað samskiptatæki. Þessi maður fór í nokkrar ferðir til útlanda og hitti hann útsendara Íran minnst tvisvar sinnum Shin Bet segir manninn hafa fengið þóknun, þjálfun, búnað og annað svo hann gæti betur nýst Íran í þessum ferðum. Ísrael og Íran hafa verið erkifjendur um áratugaskeið en yfirvöld Íran neita til að mynda að viðurkenna tilvistarrétt Ísrael. Þá styður Íran hryðjuverkahópa og önnur samtök sem beita sér gegn Ísrael. Gonen Segev, fyrrverandi orkumálaráðherra Ísrael, var dæmdur í ellefu ára fangelsi í fyrra eftir að hann viðurkenndi að hafa njósnað fyrir Íran.
Ísrael Íran Mest lesið Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Ólíklegt að hættustigið verði lækkað á komandi árum Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira