Hluthafi í fjarfundafyrirtækinu Zoom hefur hafið hópmálsókn gegn fyrirtækinu vegna fullyrðinga þess fyrir um öryggismál. Lítil innistæða hafi reynst fyrir persónuverndarloforðum Zoom og auglýst dulkóðun hafi ekki verið upp á marga fiska.
Í stefnu hluthafans, Michael Dreu, segir að afhjúpanir fjölmiðla síðustu daga hafi varpað ljósi á umrædda öryggisgalla í fjarfundabúnaði Zoom. Fyrir vikið hafi hlutabréfaverð í fyrirtækinu hrapað skarpt á síðustu vikum, markaðsvirði Zoom hefur þannig lækkað um þriðjung frá því í lok mars. Það hafði hækkað ört meðfylgjandi kórónuveirufaraldrinum og aukinna vinsælda fjarfundabúnaða í samkomubönnum um allan heim.
Eins og Vísir greindi frá fyrir helgi hafa forsvarsmenn Zoom lofað að taka öryggismál sín í gegn. Stóraukin ásókn í Zoom, úr 10 milljón mánaðarlegum notendum í rúmlega 200 milljónir á dag, hafi afhjúpað hina ýmsu galla sem forsvarsmenn fyrirtækisins höfðu ekki getað gert sér í hugarlund. Nú þegar sé búið að gefa út nokkrar uppfærslur og ætlar Zoom sér að vera búin að stoppa í öll göt innan 90 daga.
Mörgum þykja þær yfirlýsingar þó ekki traustvekjandi. Þannig hefur tæknifrumkvöðullinn Elon Musk bannað starfsmönnum geimfyrirtækisins SpaceX að nota Zoom vegna „alvarlegra efasemda [þess] um öryggis- og persónuverndarmál.“ Stjórnvöld í Tævan hafa að sama skapi bannað ríkisstarfsmönnum að nota fjarfundabúnað fyrirtækisins.