Telja morðvopnið í máli Palme fundið Andri Eysteinsson skrifar 8. júní 2020 21:59 Olof Palme var 59 ára gamall þegar hann var skotinn til bana árið 1986. Hann gegndi þá embætti forsætisráðherra í annað sinn. Vísir/EPA
Talið er að skotvopnið sem notað var til þess að myrða Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í Stokkhólmi 28. febrúar 1986 sé fundið og greinir SVT frá því að yfirsaksóknari muni tilkynna það á blaðamannafundi höldnum næsta miðvikudag. Til hefur staðið að kynna niðurstöðu rannsóknar ríkissaksóknarans í Svíþjóð á morðinu á Palme með stafrænum hætti næsta miðvikudag. Yfirsaksóknarinn, Krister Petterson og Hans Melander, sem farið hefur fyrir rannsókninni munu kynna niðurstöðurnar. Í samtali við SVT og Aftonbladet segir ritstjórinn og rithöfundurinn Daniel Suhonen að samkvæmt heimildum sínum verði greint frá því að morðvopnið hafi fundist. Samkvæmt fréttaflutningi Aftonbladet hefur dómsmálaráðuneytinu verið gert viðvart og segir heimildarmaður blaðsins það klárt að um sé að ræða morðvopnið. Ríkissaksóknarinn Petterson hafði áður lofað því í fjölmiðlum að kynnt yrðum sönnunargögn í málinu á fundinum. Rannsóknarteymið mun hafa staðið fyrir rannsóknum á ýmsum skotvopnum undanfarin ár sem talið er að hafi komið úr fórum byssusafnara sem sagður er hafa verið náinn vinur Stig Engström, Skandiamannsins, sem var viðstaddur morðið á Palme. Saksóknaraembættið og sænska ríkisstjórnin vildu ekki tjá sig um málið þegar SVT leitaði eftir viðbrögðum.
Svíþjóð Morðið á Olof Palme Mest lesið Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Mikilvægur fundur með Íran framundan Erlent Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Innlent Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Erlent Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Innlent Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Innlent Fleiri fréttir Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Skoða kostnaðinn við yfirtöku Grænlands Loka síðasta kolaorkuveri Finnlands Sjá meira