Við fáum alltaf reglulega fréttir frá lesendum sem hafa verið duglegir að segja okkur frá því sem á daga þeirra hefur drifið og einn af þeim er Snorri Óskarsson. Hann var við Elliðavatn í morgun í frábæri veiðiveðri og þeim félögum gekk afskaplega vel. Þeir voru saman með fjórtán urriða, allt á flugu og stærðin var mest um eitt til tvö pund en einn fjögurra punda fiskur kom þó á land líka.
Fengu allt á litlar flugur
Þeir fengu þetta allt á litlar flugur í stærðum 16-18, bæði púpur og þurrflugu og á tímabili segir Snorri að vatnið hafi hreinlega kraumað þar sem þeir voru við veiðar. Veiðimenn sem voru í kringum þá gekk líka ágætlega og það var greinilega að það var tökugleði við vatnið í morgun.